Lögberg


Lögberg - 30.07.1953, Qupperneq 18

Lögberg - 30.07.1953, Qupperneq 18
18 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 30. JÚLl, 1953 GUNNAR DAL: HVAÐ ER NIRVANA? Meistari Budda kennir, að hverjum manni sé í sjálfsvald sett að losna undan oki þjáninga og dauða og öðlast æðstu gæði lífsins, sem indversk heimspeki kallar Pali Nibbana og á sanskrít Nirvana. Þetta ástand, Nirvana, hefir orðið heimspekingum óþrjót- andi umræðuefni og hver heldur þar fram sinni skoðun. Sá einn, sem þöglastur er og ófúsastur er að ræða þennan djúpa leyndar- dóm, er sá, sem þekkti hann betur öðrum mönnum, sjálfur meistarinn Budda. Hann, sem sjálfur lifði Nirvana, skildi að tilgangslaust var að reyna að gefa blindum mönnum, sem al- drei höfðu séð ljós, hugmyndir um liti. — Betra var að reyna að kenna þeim, hvernig þeim var sjálfum unnt að öðlast sýn. — En blindir menn sætta sig ekki við að geta þekkt heim sjónarinnar með eyrum sínum! — Þegar menn heyra um eitt- hvað, sem liggur utan reynslu og skynjunar venjulegra manna, viðurkenna þeir ekki vanmátt sinn til að skilja hugmyndina réttilega, heldur viða þeir að sér reka úr fjörum fræða sinna og byggja úr þeim hina nýju hug- mynd, — nákvæmlega á sama hátt og sá, sem aldrei hefir notið sjónar, reynir með tón og snert- ingu að skapa sér hugmund um rautt eða blátt. En vegna þess að meistarinn þagði fundu aðrir hjá sér hvöt til að tala og útskýra. Og svo margt hefir nú verið skrifað um Nirvana, að í leit okkar í fornum bókum og nýjum getum við a. m. k. rekizt á tuttugu mis- munandi hugmyndir og kenning- ar um eðli þessa fyrirbrigðis. — En svo undarlegt sem það þó kann að virðast, hefir aðeins ein þessara hugmynda — sennilega ! Macleod’s Authorized Dealer Glenboro All your home and farm needs at low prices and satisfaction guaranteed. Phone 126 GLENBORO MANITOBA Minnumst sameiginlegra erfða á íslendingadeginum á Gimli, 3. ágúst, 1953. SARGENT TAXI LIMITED TRANSIT TAXI LIMITED SILVERLINE TAXI LIMITED WINNIPEG Phones 20-4845 - 20-3069 MANITOBA sú fjarstæðasta — náð verulegri útbreiðslu á Vesturlöndum. ~ ☆ Schopenhauer, er sagður hafa lesið Uphanishada — ekki á frummálinu að vísu, heldur latneskri þýðingu, sem gerð var eftir persneskri þýðingu úr frummálinu Sanskrít. — Þessi frægi og áhrifamikli heimspek- ingur miðlaði síðan öðrum þjóð- um Vesturlánda af nægtum þekkingar sinnar á indverskri heimspeki. Schopenhauer skild- ist, að Nirvana þýddi dauði — útslokknun og endir allrar til- veru. — Að lífið væri þjáning, sem aðeins dauðinn væri lækn- ing á. Og þennan dauða hélt Schopenhauer að Indverjar köll- uðu Nirvana. Prófessor Oldenberg leyfir sér ekki að hafa aðra skoðun. Rhys Davids er og sama sinnis. Hún segir m. a.: „Nirvana Buddismans merkir einfaldlega dauði.“ Dahlke tekur í sama streng: „Aðeins samkvæmt kenningu Budda er lausnin undan þján- ingu neikvæð en ekki jákvæð hugmynd í líki himneskrar dýrðar.“ — Allir þessir víð- þekktu fræðimenn Vesturlanda halda og hafa kennt öðrum að halda að Nirvana væri neikvæð hugmynd, sem þýddi útslokkn- un lífslampans og náttmyrkur og tóm dauðans. „Það sem ég er ekki, það sem er ekki kenning mín, er ég ásakaður um,“ er haft eftir Budda, og má af þessu sjá, að misskilningur manna á kenn- ingu þessa meistara hefir byrjað snemma. En hvernig gat nú Budda kennt að Nirvana þýddi dauði, þar sem hann sjálfur 35 ára að aldri lifði Nirvana og dvaldi eftir það 45 ár á jörðinni, til þess að fræða menn um rétta breytni, sem leiddi til hinnar æðstu hamingju? Ekki er svo að skilja, að allir fræðimenn Vesturlanda hafi gert sig seka um að endurtaka þenn- an einfalda skilning Schopen- hauers. Max Muller segir eftir kerfis- bundna rannsókn og nákvæma leit í fornum bókum, sem fjalla um kenningu Budda um Nirv- ana: — ,,Þar er ekki að finna eina einustu setningu, sem rétt- lætir þá kenningu að Nirvana þýði dauði.“ Budda kennir að hin lægri til- vera líði undir lok og hverfi mönnum, þegar Nirvana er skynjað. Sá heimur, sem þá opn- ast er að vísu hinn gamli heimur, en séður í nýju ljósi. — Heimur, sem skynsemi manna fær ekki skilið fyrr en innsæi mannsins hefir náð fullum þroska. Þannig er Nirvana hvarf hinnar lægri tilveru og birting annarar og háerri, líkt og stjörnur, sem virðast hverfa, þegar nóttinni lýkur og nýr dagur kemur. Stjörnurnar hverfa ekki í raun og veru þegar sólin kemur upp — við sjáum þær aðeins ekki lengur, vegna þess að annað ljós er þeim bjartara. — Á sama hátt hverfur veröldin heldur ekki í raun og veru — hún breytist aðeins í vitund þess manns sem lifir Nirvana. Hann skynjar þá hið sanna eðli tilverunnar og lífsviðhorf hans er eilíflega breytt. Þó Budda á sama hátt og Upanishadar vari menn við þeirri villu að reyna að lýsa Nirvana, hafa þó margir gerzt brotlegir við það boðorð. — Öld- ungurinn Nagasena segir t. d. um Nirvana: „Þar hefir maðurinn engar þarfir meir, heldur engar langanir. Þar vaxa blóm hrein- leikans og hins sanna lífsskiln- ings. Nirvana líkt og fæða við- heldur lífinu og bindur enda á hrörnun og dauða. Líkt og fæða CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 64th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 3rd, 1953. THE TORONTO GENERAL TRUSTS CORPORATION 1902— 51 Years in Winnipeg —1953 eykur það styrk manna, og eins og fæða er lind hinnar himnesku fegurðar. Nirvana er ósköpuð líkt og rúmið, og eins og það hvorki eldist né deyr, hverfur né endurfæðist. Nirvana er hinn fullkomni heimur hinna upp- lýstu. Líkt og óskatréð uppfyllir það allar óskir manna. Það vek- ur gleði og er fullt birtu.“ Þannig lítur öldungurinn Nagasena á Nirvana. í hans aug- um er það ekki útslokknum eða dauði, heldur hið fullkomnasta stig tilverunnar. í Buddaghosa er Nirvana á sama hátt lýst sem raunverulegri tilveru. Þar er að- eins bundinn endi á hatur, ótta reiði og aðrar hinar lægri hvatir manna, þar sem hvatir geta að- eins verið til meðan menn eiga ófullkomnar óskir. En Nirvana verður aðeins lýst með neikvæð- um setningum: Það er ekki þetta og ekki hitt. í Sarvastivadin (Vabhasika) er Nirvana talið hámark ‘mann- legrar tilveru, þar sem maðurinn hefir náð fullkomnun og er laus undan löstum og þjáningum og allar þrár manna eru uppfylltar. Sarvastivadin fjallar um hin þrjú algildu sannindi, (asamskrta dharma), sem eru kjarni Nirv- ana, og verða þau aldrei sögð með orðum, þar sem orð geta aðeins lýst hinu tákmarkaða en ekki hinu algilda. Þessi þrjú sannindi eru þar sögð mynda þríhyrning hins raunverulega. Þau verða aðeins skynjuð með innsæi. Af þessum orsökum geta hug- myndir heimspekinganna aldrei gefið mönnum raunhæfan skiln- Framhald á bls. 22 Kaupið Lögberg Víðlesnasta íslenzka blaðið Með innilegum kveðjum í tilefni af íslendingadeginum 3. ágúst 1953. McLenaghen & Newman FRANK W. NEWMAN, Q.C. SELKIRK MANITOBA CONGRATULATIONS to the lcelandic People on the Occasion of the 64th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, August 3rd, 1953. SARBIT'S GROCERY Phone 256 - 556 SELKIRK HENNINCARTILLAC ÚLENDINGA... Um margar aldir hefir hin fámenna íslenzka þjóð, lagt fram stóran skerf til heimsmenningarinnar, þó einkum með sínum mikilvægu bókmentum. Á síðustu árum hefir þjóðin lagt mikið fram í þágu mannúðarhugsjónanna, svo sem með fjárframlögum í UNICEF, eða sjóðinn, sem sameinuðu þjóðirnar stofnuðu til vegna umkomulausra barna. Tillag Islendinga í barnaverndarsjóðinn með það fyrir augum, að þessir umkomuleysingj ar fengju betra uppeldi og mentun, nemur $4.39 á hvert mannsbarn í þessu litla landi, sem ekki telur nema 145,000 íbúa, en með þessu skarar þjóðin langt framúr hinum auðugri og fjölmennari þjóðum. Á hliðstæðan hátt er tillag Islendinga til Canada. Þeir hafa lagt fram sinn menningarlega skerf til Canada, ekki aðeins á vettvangi mentamála, heldur einnig á sviði samvinnunnar. Þetta má ljóslega marka af stuðningi þeirra við hveitisamlögin í Sléttufylkjunum. CANADIAN CO-OPERATIVE WHEAT PRODÖCERX LIMITED WINNIPEG MANITOBA POOL ELEVATORS Winnipeg, Manitoba SASKATCHEWAN COOPERATIVE PRODUCERS LTD. Regina, Saskaichewan CANADA ALBERTA WHEAT POOL Calgary, Alberta /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.