Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 3

Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 3
OLDIN. Þetta longst, að leyfa að alt Sé létið “upp á kontrakt” falt, Ncma grillur gamlar mjög Grónar dýpra’ en stjórn og lög. (Alt fær stjórn og lög upp leyst) Lög og stjórnir geta breyzt! Aldrei höft á hyggju sjálfs, Hindrun stærst að verða frjáls, Né sú þræls-lund þver og ljót Þinnar sálar tmhnapps-mót Heimta að þrýsta’, af hindrun frí, Huga hvers manns niður í, Ekki þó ég þrátti grand Við þig né “kontraktarans” land, Samning þinn ég þekki’ og skil . . . En þarna’ er nafn mitt, sjáðu til! IV. VIÐ BAIíN Á AFMÆLISDAGINN MINN. Barn með skapið ofið úr Ardags-blíðu’ og þrumu-skúr, Veðri, sem að alt grær í, 011 er veröld þér svo ný. Alt það, sem þitt auga sér, Upp í þinum huga ber Spurning — út úr öllu skín Einhver þýðing djúp og brýn. Hreinskilinn í hjarta þú Hræsnar ei fyrir vana’ og trú, Aldrei þinnar reynslu rök Rekur úrlausn dular-spök. I þinn vona’ og vizku-garð Víða þó að brotni skarð, Þú átt gnægð af efni, að Aftur jafnskjótt fylla það. Hikar ei við það óreynt er, * Ofraun margt þð verði þér ; Stundum óvænt afreks-verk Af því vinnur hönd þín sterk. Þar sem blíða finst og fjör Festirðu á augun skilnings-snör. Bezt þú sögur kappa kant, Kempum fornum mest þú ant. Með ærsl og hrekki’ og æsku-sveim Yngir þú upp roskinn heim. Ertni þinni fiýja frá Fýlu-drembinn staurkarl má. Bnrn, sem enn átt.upprof víst, Upp í hret ef bernskan snýst — Hún er ei eintóm hlátra-sköll, Hún or og sorg og tára-föll. Barn, með hjartað haturslaust, Hugar-auðlegðv von og traust, Sátt við gærdag sofnar strax, Sól ei kvíðir morgundags. Barn með skapið ofið úr Árdags-blíðu’ og þrumu-skúr ! Ljá mér hjarta' og huga þinn Hönd þó stirðni og fótur minn. Mér þá út úr öllu skín Einhver þýðing djúp og brýn ; Hljóma’ ei tímans hávamál Heyrnarlausri fyrir sál. Hégiljur, sem veldi vítt Veitir stafkarls gervið sítt, Erta þori — þykkjuspar. Þó það kallist stráka-par. Þekkingar í þarfa-garð Þreytist eigi’ að fylla skarð. Kaupið hæst það heimta i Hverju verki, að orka því. Og með geðið æslcu-rótt Eg þig “kyssi góða nótt,” Er kveðurðu’ að hátta hinsta sinn Heimur, þreytta drenginn þinn ! V. FJALLDALUR. Vænt er að sjá svo vel um búna Valhöll, á sem flestum leizt — Á súlum háum hamra-brúna Himinbláa þakið reist. Botninn, hlíð í boga dregin Með breðann síða’, er gaflinn þver; Opnar víðar dyr mót degi Dalsins fríða mynnið er. Grjótvegg hlaða frera-fastar Fjalla-raðir tengdar við Skóga-traðir skrautlegastar, Skorða stað á hverja hlið. Glampar á skjöldu, gaddinn harða, Gnúpa fjöld með hjálm og spjót; Grænu tjöldin, gluggar skarða, Glóa’ á kvöldin sólu mót.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.