Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 32

Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 32
80 ÖLDIN. einn liðsmanna hafði hann látið hengja, er hænu hafði rænt frá einum hæjarmanni; á einum stað hafði haun numið staðar á miðju strætinu og átt viðtal við þá, sem fram hjá gengu. Þóttust þeir nú þekkja skugga hans, þar sem einhver gekk fyrir giuggann, þótt rúðurnar væru smáar, og lék þeim heldr en ekki hugr á að vita hvort lcóróna þýzka ríkisins yrði ekki sett á höfuð hans það sama kveld. Inni í hali- arsölunum var alt fult af konunglegu skrauti og kurteisi. Gústaf Adolf þekti hreyskleikahlið konu sinnar, að hún var skrautgjörn mjög, enda vildi hann þá um leið sýna höfðingjum Þjóðverja hvað hann ætti undir sór. Gólfln voru hreidd dýrind- is glitáhreiðum frá Flandri, en yfir alla gluggana voru undnir upp purpurarauðir flöjelsreflar með gulldúskakögri; loftin voru öll stöfuð gullnu rósaverki og héngu niðr úr þeim í röðum þungar og stórar ljósakrónur úr silfri með þúsundum vax- kertaljósa. Menn höfðu þá nýlokið ein- hverjum inna fornn, hægfara eu tignar- legu spænsku dansa, sem inum líkama- þungu Norðrlandahúum ekki gekk eins flmlega að stíga eins og inum þýzku og frönsku aðalsmönnum. Konungr hafði hoðið konu sinni arm sinn, og reikaði með henni um ina Ijómandi sali. Ilann var hæði hár og þrekvaxinn, útlit hans og íramganga bæði tíguleg og óbrotin, og vakti því jafnt lotning manna sem þokka. Þótti hann nú enn þá hærri og karimann- legri, þar sem hann gekk við hlið innar grönnu og smávöxnu drottningar sinnar, sem studdi sig við armlegg hans með inni- legri hollustu-tryggð. María drottning hafði þá tvo um þrítugt, og hafði enn þá haldið inu mesta af fríðleik sínum, sem svo mörgum hafði fundizt mikið til á æskuskeiði hennar. Hún hafði svart hár í lokkum og var þeim hrugðið upp yflr inum hjörtu gagnaugum hennar, eu á höfði hennar skein gulldjásn mikið, er konungr hafði þá nýgefið henni, og var þnð furðu dýrmæt gersemi. Jlún gat yarla haft in fögru og hláu augu sín annar- staðar en á konunginum, svo var ást henn- av og aðdáun mikil; þótti og svo sem hún gleymdi sjálfri sér til þess að geta tekið •fullan þátt í tilbéiðslu annara á manni hennar. Á eftir þeim fylgdi flest, sem þá var til á Þýzkalandi af frægð og ágæti, og Lúthers sið fylgdi. Þar mátti sjá Friðrik fyrrum Bæheims konung, hertogana af Weimar og Wurtembergi, landgreifann af Hessen, markgreifann af Baden-Durlach, greifana af Wettarau og aði’a ágæta höfð- ingja og riddara; þar voru ekki færri en 12 sendiherrar útlendra hirða, sem dregist höfðu að þessum ógnarbíldi allrar Norðr- álfunnar. Af konungsins eigin mönnum voru þeir Tott, Banór og Gústaf Horn annarstaðar í þjónustu ófriðarins, en \ ið hlið Gústafs konungs mátti sjá mann, mik- inn eins og hann, einnig að ytri sjón, spek inginn og snillinginn Axel Oxenstjarna, og fyrir af'tan hann annan, fölleitan og skarp- leitan mann, grannleitan og hægan í fari, en með hauksnörum hershöfðinpjaaugum. Það var Lénharðr Þorsteinsson ; þar var cnu inn ríkiláti Fiuni, Witteuberg, sem þá var lautenantofursti, margir sænsku for- ingjarnir hinir, og flestir inir flnnsku. Stálhanzki, Rúth, Forhus og fl. þrifnstekki vel í viðhöfn hallarsalanna meðal inna há- velbornu aðalsherra ; þóttu inir hæversku hirð-siðir all-ófrjálslegir þessum harðvígu görpuin, og höfðu þeir því snemma dregist aftr úr og héldu til í minni sölum, en nóg höfðu þeir til hressingar, því hirðsveinar í flögelskirtlum gullsaumuðum skenktu þeim ið skýrasta rínarvín í silfrkemm. Með þess i skrautlega fjölmenni má enn fremr telja staðarins ráðherra í Frank- furt og fjölda ríkismanna úr horginni með frúm þeirra og dætrum, svo og margar hefðarkonur aðrar, frá hertogafrúnni til ráðherra húsfreyjauna, er lítið minna létu til sín taka. [Frumh.] Ritstjóri: JÓN Ö.LAFSSON. Utgefandi: Hkh. Prto. & Puisl. Co,

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.