Öldin - 01.07.1893, Side 23

Öldin - 01.07.1893, Side 23
ÖLDIN. 71 sýnis úr öllum kastalanum og vildi þeim því ekki sleppa. “Meinið mér ekki þess,” sagði hún við munkinn, þegar hann aðvar- aði hana. “Ég vil sjá, hversu villumönn- unum fer að hlæða, og sj& þá falla fyrir fallbyssum vorum; það verðr dýrleg sjón!” “Amen,” sagði Pa,ter Hieronymus. “Þú veist, ddttir góð, að höll þessi er varin af tveimr máttugum Mariumyndum, og er önnur úr gulli, en önnur er úr gylltu tré. Ég vil hengja trémyndina upp i herbergi þínu, það mun bæjga kúlunum í'ríi tumin- um þínum.” Óðara en dagr rann, stóð Regína við turngluggann sinn litla. Það var Ijóm- andi fögr sjón, að sjá þegar sólin rannupp á inum haustleitu háisum með vínekrumar enn þá hvanngrænar, en Mainfljótið rann þar í bugðum í morgundýrðinni eins og skínandi gull- og silfrband. Niðri í bæn- um var alt á hreyfingu. Fjórar herdeildir af sænsku fótgönguliði æddu inn með blakt- andi fána og bumbur og básúnur; mitti glöggt sjá, hvernig pansararnir blikuðu í sólskininu og Qaðrskúfar foringjanna bifðust fyrir vindinum. Ótti og undrun háðu hólmgöngu í hjarta innar ungu meyjar. “Líttu á,” mælti hún við Katrínu, “líttu á riddarana tvo þarna með gula pansara í ferðabroddi villumanna liðsins!” “En hvað þeir era drengilegir til að sjá! Nú beygja þeir fyrir hornið á stræt- inu — þar koma þeir aftr ! Lítið á, hversu allir hliðra til fyrir þeim.” “Kalla þú á Friðrik greifa; hann lieflr verið yfir hálfan mánuð í herbúðum Sví- anna og þekkir helztu höfðingja þeirra.” Greifinn, sem ekki gat tekið þátt í vörn hallarinnar sakir sáranna, var feg- inn boði jungfrúarinnar. Nú vóru Svíar búnir að taka bæjinn og hvörfluðu nú hóp- ar af þeim um fljótsbakkann og við sprengdu brúna. I sama bili hófu fall- byssur kastalans sönglistina. Hér og þar laust niðr kúlu, þar sem Svíar stóðu, og reyndu þeir til að fá sér skjól bak við húsin á bakkanum. “Heilaga María! Þar f'éll einn maðr- inn og stendr ekki upp aftr !” æpti Katrín, og gat ekki dulið meðaumkun sína. “Sé hann sankti Fransiskr lofaðr! Þar fækkaði um einn villumanninn í ver- öldinni,” sagði Doroþea gamla, f'óstra Re- gínu, sem séra Hieronymus hafði sett til þess, að vaka yfir hverju hennar fótmáli. “En það er óttalegt, að skjóta menn til bana!” Friðrik greifl brosti við ogmælti: “Þá hefðuð þér, jungfrú Katrín, átt að sjá víg- völlinn við Breitenfeld. Níu þúsundir fallnir!” “Það er viðbjóðslegt!” “Getið þér sagt mér, greifl, hverjir þeir riddarar eru, sem þarna nema staðar í miðri skothríðinni, og virðast vera að njósna um ásigkomulag kastalans ?” “Afsalcið mig, fagra frændkona ; púðr- reykrinn tekr að varna víðsýnisins. Þessir riddarar— eins og ég lifl er það .sjálfr konungrinn og greiflnn Pehr Brahe. Mér þykir ílt þeirra vegna, ef séra Hieronymus skyldi þekkja þá, því þá myndi hann láta miða öllum borgarinnar byssumbeint þá.” Eftir þessi orð, læddist Dóróþea gamla út úr stofunni. “Hvað sögðuð þér, frændi, þykir yðr ilt vegna villu-kóngsins ?” “Hversvegna brennr yðr eldr úr aug- um, fagra Regína, þótt ég segði svo ? Skilj- ið þér ekki, þér, sem eruð svo göfuglynd og viðkvæm í lund, að manni er leyfilegt að sýna hluttekningarsemi hraustum og hæverskum óvini. Konungr þeirra Sví- anna, er hetja mikil, sem verðslculdar vora aðdáun engu síðr en heiftir vorar oghatr.” “Ég skil yðr ekki, villutrúai’maðr !” “Skaparinn fyrirbjóði, að þér nokkru sinni fáið að sjí hann innan þessara múra, en þá munduð þér skilja mig -------nú nú, þeir ætla að steypa sér yflr brúna; þeir varpa bjálkum yfir bogagötin ! Það er fífldirfska!”

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.