Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 24

Öldin - 01.07.1893, Blaðsíða 24
ÖLDIN. • 72 “Þar féllu fjórir í einu!” æfti Katrln. r “Eg þekki þá gjörla,” æfti greifinn og æstist æ meir við orustugnýinn, sem tekinn var að hrista kastalamárana, “ég þekki þá, það eru Skotarnir. Það eru ekki til hraustari menn í öllum Svíaher. Skotar og Finnar eru flvalt fremstir, þar sem mest er mannraunin.” “Nei, lítið á, frændi! Skotarnir yðar hopa undan, þeir þora ekki að hætta til ins voðalega hlaups!” “Þar þarf meira til en mennskra manna hugrekki. 24 fet undir inum ör- mjóa bjálka ólgar fljótið.” “Tveir grannvaxnir fyrirliðar stökkva út á bjálkann.” “Það eru bræðurnir Romsay, báðir kornungir menn. Eg þekki þá á blóa silki- bandinu þeiri'a, þeir unna biðir sömukonu og bera hennar iit, en unna þó hvoröðrum engu miðr.” “Guð varðveiti þi! — Æ María, þá in heilaga, þetta er liræðilegt að sji.” Katrín brá lxöndum fyrir andlit sér. Óðai-a en inir hugpráðu Skotar höfðu náðmiðjum bljxlkanum, sáust þeir riða til falls, missa síðan jafnvægið og steypast niðr í fijótið. Rétt á eftir sázt hvar þeir stríddu í iðunni. En brátt hittu þá kálur óvina þeirra, fór þeim þá að förlast sundið, því herklæðin drógu þá niðr. Á næsta augabragði lukt- ist fljótið saman yfir þessum riddai’aiegu æskumönnum. “Þér leizt áðan svo vcl á ófriðinn,” sagði Regína kuldalega, en lijarta hennar var samt heitt og barðist ákaflega. “Já, á fögru riddai-ana, hljóðfærin og veizluhöldin, en ekki á þetta,” æf'ti Katfín grátandi. “Skotamir hopa!” kallaði ein þernan. “Já,” sagði greifinn áhyggjulegr, “en Svíarnir eru að byrja yfirför á bátum.” “Skotarnir hlaupa aftr út á bjálkann.” “Það hugsaði ég lengi,” svaraði gi’eif- inn. “Guð hjájpi til, þeir komast yfir; þeir taka sér stöðu á bakkanum, Vorir menn eru að gera úthlarp!” “Farið þér gætilega, jungfrú Regína, beygið yðr ekki út úr glugganum, Inir sænsku miða byssunum á turninn.” “Eruð þér hi’æddr, greifi ?” mælti Re- gína brosandi. Greifinn kafroðnaði. “Ég þykist hafa sýnt og sannað ið gagnstæða. Illustið þér til, og þá munuð þér heyra æ annað veifið dunur, sem þér vitið ekki hvar af koma, og hrun eins og eftir smágrjót. Eg skal segja yðr hvað það er. Það eru falh byssukúlui’, júngfrú góð. Þér mynduð heyra betr þeirra, sönglyst, ef hávaðinn gjörði yðr ekki daufa. Síðan fyrir hálfi’i stundu hafa þær verið að rífa hvert stykki á fætr öðru úr turnmúrnum og sífelt á sama stað. Það era ekki siki’ki’inglur, kæra frænka ; þessir Svíarnir hafa lært listixxa af sjálfum töfra-veiðimanninum.” “Munduð þér trúa því —” “Að Svíarnir ætli sér að skjóta niðr þennan turn til þess að fylla kastaladýkið með því sem hrynr ? Já, frænka, og ég trúi því að þeim takist það. Yðr er hér ekki óhætt eitt augnablík f'ramar; þérliljót- ið héðan að fara.” “Undireins, náðugi herra, undireins! Komið, jungfrú !” kallaði Katrín og vildi toga húsmóðir sína burt með sér. En Re- gína var æst í skapi. Iíún var vön við að skipa, öðram, og þó gjörði, ef til vill, meira að verkum þrályndið í hennar gjörsamlega íindstæðiiegu lund, sem fléttaðist saman við ti’úarofsann, þann er Hieronymus hafði inn- rætt henni f'rá blautu barnsbeini. Hún hörfaði aftr á bak, þreif ina gyltu Maríu- mynd, er munkrinn gaf henni til vamar, og nam staðar úti í gluggaskotinu. “Far!” sagði hún, .“ef þér erað svo trúarveikr, að þér efist um varðveizlu dýrðlinganna. Ég verð hér kyr og kúlur villumannanna skulu ekkei’t megna móti------” Jungfrú Re- gína var ekki búin að segja það sem hún hugsaði þegar kúla small á turnveggnum á ská og braut slcai’ð í gluggatóttina að utanvexðu. Stói’fjúk kom inn gegnum gluggann af möl og lcalki, steyfti um koll

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.