Öldin - 01.07.1893, Síða 20

Öldin - 01.07.1893, Síða 20
ÖLDIN. 68 sveinai’ og svo við og við smíiveizlur í bænum. Það er þó eitthvað annað en að sitja innilokaðr í klaustri frá morgni til kvölds, og hlusta á munkana tóna De pro- fundis'1. ,,Já,“ hætti hún við, „ég vildi sú náðugi hyskup yrði sem leugst í hurtu.“ „Katrín litla, “ sagði Regína, „var- aðu þig á því, að tala illa um messugjörð- ir munkanna; mundu eftir því, að skrifta- faðirinn, Hieronymus, er f'élagi ins hei- laga rannsóknardóms, og að ríkisfangels- ið er hæði djúpt og dimmt.“ Katrín þagn- aði snöggvast, en byrjaði aftr að vöxmu spori gallhörð : „væri ég í rporum jung- frúari'nnar, skyldi ég heldr hugsa um lag lega greifann af Lichtenstein, en um grettna munkinn hann Hieronymus. Greif- inn er forkunnar fríðr riddari; guð gefi honum að geta komið aftr með sæmd og sigri úr hernaðinum móti villutrúarmönn- unum.“ ,,Og að þeir mættu allir afmáðir Verða með háli og hrandi,“ gall þá við önnur þerna með guðræknissvip. „Vesælings villutrúarfólkið !“ kallaði Katrín upp yfir sig hlæjandi. „Gættu nú að þér!“ sagði Regina jneð einfeldnis-alvöru. „Villutrúarmenn eiga enga vægð að fá. Sá sem drepur villutrúarmann, f'ær sjö syndir fyrirgefnar, það hefir sóra Hieronymus sagt mér. Að liatast við villutrúarmenn er sjöunda sakramentið, og að elska einhvern þeirra, er að oírseija helvíti sílu sína.“ In svörtu augu Reginu urðu öll í loga við orð þessi; var það auðséð, að kenningar skriftaf'öðursins höf'ðu fest djúpar rætr í sílu hennar. Katrin lét ekki hugf'allast. „Menn segja, að konungr þeirra sé mildr og góð- gjarn, að hann tali máli allra umkomu- lausra og leyfi ekki dátuiri sínum nokkm yfirgang." „Satan hreytir sér oft í Ijóssins engil.“ „Menn segja, að hcrmenn hans sé bæði hraustir og mannúðlegir. Jeg heyrði sjálf gamlan ítalskan riddara segja piltun- um í vopnasalnum frá því, að sjötíu menn at' villutrúarfólki, sem heita Finnar, hefðu varið konung sinn á móti 1500 mönnum f'rá Neapel í meira en heila klukkustund. Þegar flestir villutrúarmennirnir voru fallnir, f'engu hinúy sem eftir voru, hjílp og unnu sigr ; en seinna bundu þeir um s ir úvina sinna undir eins og sinna eigin manna.“ Jungfrú Regina stóð þá upp og vildi gef'a skorinort svar, en í sömu svipan kom þjónn inp úr dyrunum og kunngjörði, að greifinn af Lichtenstein væri þar kominn sjúkr og særðr og beiddist gistingar. In unga mær, sem mestu réð í höllinni, þeg- ar frændi hennar byskupinn var ekki heima, skundaði óðara of'an til að bjóða velkominn gest sinn, sem líka var nokkuð skyldr henni. Þernurnar litu liver fram- an í aðra, eins og þeim þætti þessi atburðr miklum tíðindum sæta. Hafði það lengi verið hvískrað, að gamli byskupinn héf'ði kjörið greif'ann til eiginmanns handa jungf'rúnni. Iín árangurslaust reyndu þær til að sjá roða bregða fyrir á kinnum liennar, þá er hún lieyrði hver kominn væri. Hafi því jungfrú Regíira haft hlýj- an hug til hans, þá kunni hún að minnsta kosti að halda því leyndu. „Hvort er það satt,“ spurði ein þern- an, „að villukongrinn hati unnið stóran sigr yfir þeim rétttrúuðu, og sé á leiðinni hingað með sínuin óguðlega her?“ „Svo segja menn,“ ansaði önnr, „en hingað getr hann ekki komizt. Okkar menn haf'a sett líkneski af' sænska dýrling- inuin henni Birgittu rétt á miðja götuna í Thyringarskóginum, þar scm liann yrði að fara, og hún er handviss að stemma stigu f'yrir honum.“ Á meðan hafði jungfrú Regína látið búa eitt af' herbergjum sjálfs byskupsins handa gesti sfnum, og bjóst að láta f'ara sem bezt um hann. Inn ungi greifi af Lichtenstein var eitthvert ið göfgasta og fríðasta mannsef'ni, dökkr á brún og brá sem Spánverji, og augu hans brunnu og

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.