Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 14

Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 14
62 ÓÐINN Þórður Flóventsson °g ^akobína jóhannsdóttir frá Svartárkoti. Þórður er fæddur að Svínadal í Kelduhverfi 29. júní 1850. Foreldrar hans voru þau Flóvent Þórðar- son (ættaður úr Eyjafirði) og Helga dóttir Guðmundar Magnússonar bónda í Vatnshlíð í Húnavatnssýslu. En ömmur Þórðar voru systur, María og Helga, Odds- dætur frá Geldinga- holti í Skagafirði, syst- ur Gunnlaugs Odds- sonar dómkirkjuprests (dáinn 1838). Þórður ólst upp hjá foreldrum sínum; fyrst Svínadal nokkur ár, en svo fluttust for- eldrar hans að Heið- armúla á Axarfjarðar- heiði, er nú mun vera í eyði. Eftir tveggja ára dvöl þar og eins árs dvöl að Sandfells- haga fluttust þau að Þórður Flóventsson. Hafurstöðum, sem er fremsti bærinn í Axarfirði; mun það hafa verið um 1850. — Þá var enn lítt hugsað um bóklega kenslu handa börnunum, og naut Þórður því á uppvaxtar- árum sínum ekki tilsagnar í öðru en lestri og kristin- dómi. Að skrifa lærði hann tilsagnarlaust eftir utan- áskriftum sendibrjefa. Að öðru leyti hafa bækur og reynslan verið kennarar hans. — Hann var hjá for- eldrum sínum að Hafurstöðum þar til hann var 24 ára. Stundaði hann mikið vefnað á vetrum og óf á mörgum heimilum þar í sveit, enda verklaginn og kappsamur að eðlisfari. Er hann fór frá Hafurstöðum var hann fyrst vinnumaður hjá þeim bændunum Einari Jónssyni í Sandfellshaga og Jóhannesi Pálssyni að Ærlæk. 1880 giftist hann Jóhönnu, dóttur Jóhannesar húsbónda síns. Sambúð þeirra var eigi langvinn, því hún andaðist ári seinna. — Mun Þórður þá hafa ákveðið að fara til Ameríku. Friðbjörn Steinsson á Akureyri var þá »vesturfara-agent«. Fjekk hann Þórð til þess að ferðast um Norður-Þingeyjar- og Múla- sýslur til þess að fá skýrslu um þá, er hugsuðu til Ameríkufarar þá um vorið. — Mun Þórður hvorki hafa hvatt menn nje latt til þeirrar farar. Þó voru þeir nokkuð margir, er ljetu skrásetja sig, einkum af Langanesi (um 30). Ætlaði Þórður með fólki þessu vestur um haf, en var þá um vorið (1882) beðinn að fara til ekkjunnar Jakobínu Jóhannsdóttur, er þá bjó að Þórunnarseli í Kelduhverfi. Frestaði hann þá för sinni vestur, og varð það til þess, að hann fluttist aldrei af landi burt. Því þrem árum síðar giftist hann ekkju þessari. Jakobína er fædd að Keldunesi 30. sept. 1849. Foreldrar hennar voru þau hjónin Jóhann, sonur Páls hreppstj. í Viðvík í Skagafirði, og Margrjet, dóttir Þórarins og Bjargar í Kílakoti. Móður- bróðir Jakobínu var Sveinn, faðir Jóns Sveinssonar, hins al- þekta rithöfundar. Þau Þórður og Jakobína bjuggu í Þórunnarseli um 2 ár. Þar var þá tvíbýli og þótti þröngt, enda smájörð. — Bygði Þórður þá nýbýlið Syðri-Bakka þar í grendinni og fluttist þangað. En árið eftir hafði hann jarðaskifti við Sigurð bónda Björnsson, sem þá bjó í Krossdal. Þar bjuggu þau hjón í 14 ár (1888—1902). Fluttu þau sig þó búferlum að Svartárkoti í Bárðardal, og bjuggu þar til 1918, er þau fluttust suður að Odda til sonar síns, Erlendar, er þá varð prestur þar. Alla þessa áratugi fóru bústörfin þeim hjónum vel úr hendi; fór efnahagur þeirra og vinsældir jöfnum höndum vaxandi. Enda fór þar saman búhygni og atorka Þórðar út á við og frábær dugnaður og nær- gætni konu hans í öllum heimilisstörfum. Var heimili þeirra jafnan með hinum prýðilegustu. Bætti Þórður jarðir sínar mikið og húsaði, girti túnið í Krossdal og sljettaði; gaf það nálega helmingi meira af sjer eftir það. Þar hlóð hann og vörslugarð fyrir nes, er Tungur kallast, og liggur á milli Stórár og Litlár. Varð þar brátt flæðiengi gott, er gaf af sjer um 200 hesta árlega. — (Jm þessar mundir var Jakob Gunnlaugs- son verslunarstjóri á Raufarhöfn. Var Þórður um nokkur haust í fjárkaupum með honum, eða fyrir hann. Tókst með þeim gott vinfengi. Mæltist JEkob

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.