Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 29

Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 29
ÓÐINN 77 Tvær konur. Það er ekki alment talinn hjeraðsbrestur, og sjaldan gert að umræðuefni í blöðunum, þó bænda- konur á besta skeiði lífsins deyi frá börnum og heimili áður en dagsverki þeirra er lokið, eða tak- markinu náð. — Þetta eru þó í raun rjettri sorglegir atburðir, sem hafa meiri og dýpri þýðingu en í fljótu bragði sýnist, ekki einungis fyrir eftirlifandi ástvini og vandamenn fjær og nær, heldur einnig fyrir þjóðfjelagið í heild sinni. Og þó hafa jafnvel margar hinar göfg- ustu og merkustu húsfreyjur hvílt í gröf- um sínum árum sam- an án þess að starf- semi þeirra í þarfir lands og lýðs hafi verið virt eða þökkuð sem vert er, eða minning þeirra heiðr- uð á nokkurn hátt. Minning þeirra hefur því smátt og smátt fölnað, eins og lyng- sveigarnir og pappírs- blómin á leiðunum, uns hún hefur að lokum dáið og gleymst öllum almenningi, og að eins lifað og skinið sem fjarlæg tindrandi stjarna í hjört- um eftirlifandi ástvina. Konunni, móðurinni, er falið á hendur eitt hið vandasamasta og ábyrgðarmesta starf: að uppala, fræða og þroska æskulýðinn, leggja hyrningarsteininn undir líkamlegan, siðferðislegan og andlegan þroska komandi kynslóða. Ahrif móðurinnar og minning hennar er sú leiðarstjarnan, sem skærast hefur skinið á vegum fjölda barna fyr og síðar. Flest göf- ugmenni heimsins, flestir þjóðnýtir menn og góðir drengir, hafa átt göfugar og ágætar mæður, og við- urkenna fúslega, að þeim hafi þeir átt að þakka það sem best var og göfugast í fari þeirra. Minning góðrar og ástríkrar eiginkonu fylgir eftir- lifandi eiginmanni á hinni einmanalegu göngu lífsins, og strýkur margoft, eins og ósýnileg hönd, saknaðar- og áhyggjumerkin af enni hans. Það er því jafnt hinn mesti einstaklings- og þjóðar-skaði að burtkalli húsfreyjunnar og móðurinnar frá störfum sínum, og því meiri, sem hún hefur staðið betur í stöðu sinni og gegnt hinni þýðingarmiklu köllun sinni með meiri skilningi, trúmensku og göfgi. Hjeðan úr sveitinni hefur dauðinn eigi alls fyrir löngu hrifið tvær hinar göfgustu og merkustu hús- mæður: Björgu Halldórsdóttur frá Torfastöðum og Guðrúnu jörgensdóttur frá Syðrivík, og af því að þær voru systkinadætur að frændsemi og áttu þar að auki margt sameiginlegt um mannkosti og atgervi, virðist mjer vera tilhlýðilegt, að getið sje helstu æfi- atriða þeirra í fám dráttum, og látnar þar með fylgja stuttar persónulýsingar ásamt myndum þeirra. Björg Halldórsdóttir er fædd á Skriðuklaustri 25. maí 1881. Foreldrar: Halldór Benediktsson (prests að Heydölum, Þórarinssonar prests að Múla, ]ónssonar prests að Nesi) bóndi þar, og kona hans Arnbjörg Sigfúsdóttir (Stefánssonar prests að Valþjófsstað, Árna- sonar prófasts Þor- steinssonar að Hofi og Bjargar Pjeturs- dóttur sýslumanns Þorsteinssonar að Ketilsstöðum). Björg ólst upp í foreldra- húsum að Skriðuklaustri og naut hins besta uppeldis, enda voru foreldrar hennar hin merkustu, eins og þau áttu kyn til. Haustið 1900 hinn 1. des. giftist hún eftirlifandi manni sínum Halldóri Stefánssyni, nú bónda á Torfastöðum í Vopnafirði, er einnig var kominn af Guðmundi sýslumanni Pjeturssyni. Voru þau hjón þannig skyld fram í ættir. Dvöldust þau að Skriðuklaustri til vors 1903, er þau fluttust til Seyðis- fjarðar og bjuggu þar í 6 ár. Vorið 1909 fluttust þau að Hamborg í Fljótsdal, næsta bæ við Skriðu- klaustur, og bjuggu þar til vors 1921, er þau fluttust að Torfastöðum í Vopnafirði, og andaðist Björg þar um haustið sama ár hinn 13. október. Fimm börn eignuðust þau hjón og lifa fjögur þeirra móður sína, en eitt var dáið á undan henni, piltur á 12. ári, og efndu foreldrarnir til minningar- sjóðs eftir hann (sjá Stjórnartíðindi 1921 á bls. 294—295). Börnin eru: Ragnhildur Björg fædd 14. apríl 1902 á Skriðukláustri, Arnbjörg f. 4. okt. 1903 á Seyðisfirði, Stefán f. 16. okt. 1905 á Seyðisfirði, Biörg Halldórsdóttir. Guðrún lörgensdóttir.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.