Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 27

Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 27
ÓÐINN 75 fremst stjórnsemi húsbóndans, þá kom hún víðar við. Hinu »stærra heimili*, sveitarfjelagi sínu, stýrði hann um 12 ára skeið og naut það þessara kosta hans í ríkum mæli. Það var einkum tvent, sem gerði Jón að góðum stjórnanda í smáu og stóru, en það var stilling og festa. Þessu hlaut hver að taka eftir, sem kyntist honum nokkuð. Það var honum svo eiginlegt og samgróið. En þessir kostir eru vænlegastir til virðingar og vegsauka, enda naut Jón meiri virðingar sveitunga sinna en flestir aðrir. Og »Jón á Hreiðars- stöðum* þurfti að koma til skjalanna i flestu, er al- menning í Svarfaðardal varðaði á þeim árum. Versl- unarhættir Svarfdæla voru þá örðugir. Alt þurfti að flytja frá Akureyri á smábátum og þar eigi nema örfáar selstöðuverslanir, er þóttu eigi sem ákjósan- legastar viðskiftis við hina minni háttar viðskiftamenn. Á þeim árum hamaðist Tryggvi Gunnarsson í versl- unarmálum Norðlinga og sýndi og sannaði ýmsar færar leiðir til umbóta. Úti um sveitir gjörðu menn þá með sjer ýms verslunarsamtök, »pöntunarfjelögin« o. fl. Jón á Hreiðarsstöðum studdi þá hreyfingu af alefli í Svarfaðardal. Var þar stofnað pöntunarfjelag og veitti hann því forsjá í byrjun. Sá fjelagsskapur stóð um mörg ár og auðgaði sveitina stórlega, bæði að manndáð og peningum. Það var vísir hins víðtæka kaupfjelagsskapar þar nú á dögum. — Auk þeirra starfa, sem nú hafa nefnd verið í þágu sveitarfjelags- ins, var hann einnig úttektar- og virðingamaður um mörg ár og stefnuvottur lengi. Jón var með hærri mönnum á vöxt og svaraði sjer vel, og sjerlega myndarlegur á velli. Hann var fremur stórskorinn í andliti, en myndarlegur og ljúf- mannlegur á svip, en alt látbragð hans var stiliilegt og góðmannlegt. — Og Svarfaðardal, þeirri ágætu sveit, óska jeg af alhug þess, að hún eignaðist sem flesta, er líktust þessum merkishjónum um flest. Þá yrði »setinn Svarfaðardalur«. Snorri Sigfússon, frá Tjörn. því aflið var heimskunnar megin, — öll heilbrigði í dróma dregin. Svo hörð og skæð voru hallærisárin, svo höfug og blóði dreypt þjóðlífs tárin, að megnað ei hafa mörgu árin að má þá flekki af skildi’ og hlíf; — þar sagan vitnar um sorg og kýf. II. Þó kirkjan ríkti hjer »helg og há«, var höggormabitið skæðast þá, og næm og eitruð mörg naðran flá og nartandi þjóðar-meiðinn, og drýgjandi djöfla-seiðinn. — Því fávísi og ánauð sig hófu hátt og helgreipar lögðu á stórt og smátt, og grimdinni var þá lotið lágt af lýðnum fjötraða’ og smáða, er fátt var til frama’ og ráða. Hin útlendu valdboð frá ókunnri þjóð þau eyddu okkar lífsþrótti’, en drukku okkar blóð, og hótuðu lýðnum gálga’ og glóð, ef guðhræddur vildi’ ’ann ei »skríða«, og þegjandi þjáningar líða. En þrátt fyrir brennur, ís og eld, og alls konar hættur um morgna sem kveld, varð þjóðin ei alveg í ánauð seld, hún átti sjer kjarna’ og hróður, er var hennar vígi og sjóður. Úr eymdum brautst fólkið enn á ný, og enn þá dreifðust hin svörtu ský, og þjóðin varð aftur ung og ný, með afli, fjöri’ og hreysti, hún gæfunni og guði treysti. st Seytjánda öldin. i. Ömurleg varð hún okkar landi, þá ógnir jukust og þjóðarvandi; í gervöllu ríkti hinn »illi andi«, Og áfram liðu svo aldir tvær, að altaf færðist hún rjettu nær. — Og loks hefur sjerhver bygð og bær sjer búið hið dýra frelsi, — en fleygt hinu forna helsi. Pjetur Pálsson. c ' S£

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.