Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 34

Óðinn - 01.07.1925, Blaðsíða 34
82 OÐINN Solveig í Skor. i. Solveigu húsfreyjunni í Skor fanst nætur þessa skammdegis kvalræðislega langar. Það þreytti hana að þreyja alt þetta myrkur, langoftast eina vakandi af öllu fólkinu í baðstofunni. Henni fanst svefninn stelast frá sjer, nema lítinn tíma, frá því um mið- nættið og fram á óttuskeiðið. Eftir það ljeði hann henni sjaldnast fangs á sjer. Þetta gerði hana býsna lúna og ekki síst lúalega. Og henni fanst það ekki vera ófyrirsynju. Ahyggj- urnar, sem hagir heimilins lögðu á hana, voru henni þungar og þrálátar. Þær áhyggjur höfðu raunar gert vart við sig áður og henni stundum verið óbjart fyrir augum. En nú fanst henni þó yfir taka. Henni virtist syrta að það jelið, er litlar líkur væru til að upp mundi rofa í bráðina. Og nóttin, sem nú var að líða, aðfaranótt miðviku- dagsins í fimtu vetrarvikunni, hafði orðið henni lengst í þessu skammdegi. Nú hafði svefninn nærri því ger- samlega firrst hana. Hún hafði að vísu sofnað svo sem einni stund fyrir miðnætti. En mjög skömmu eftir miðnættið hafði hún þurft að hlynna að Dísu litlu, yngsta barninu þeirra hjónanna, sem nú var á tíundu vikunni og hún fæddi á brjósti. Upp frá því sofnaði hún ekki. Solveigu fanst nærri því sem þessi nótt ætlaði að verða sjer ofurefli. Svo hlóðust að henni áhyggju- efnin og vandræðin. Hún hafði barist við að reyna að finna lausn á þeim og bót við þeim. En hún var litlu nær undir dögunina. Að vísu var það svo, að henni hafði tekist að sefja suma hugarólgu sína. En enga lausn var hún þó búin að finna á stærstu vandræðunum. Og hvílíkur sá róður yrði, að koma fjölskyldunni óskemdri fram á vorið, gat hún með engu móti vitað. — Börnin þeirra hjónanna voru níu og það elsta að eins rúmra fjórtán vetra. Það voru því ellefu manns í heimili hjá þeim — við þurt hús. Haustið og veturinn, það sem af honum var, höfðu farið köldum höndum um heimilið. Gæftir til sjávar verið stopular og aflaföng ónóg. En þyngst og ískyggilegast var þó það, að snemmbæran skyldi farast af kálfburði fyrir hálfum mánuði. Og ekki var ein bára stök, því nú var síðbæran, sem vænta átti bjargræðis af í þriðju viku Góu, orðin steingeld. Úr þessu sýndist ekki verða bætt. Til næstu bæja var ekki að flýja. Þar voru mjólkurráðin lítið meiri en í Skor. Og ekki hafði ennþá tekist að finna neins staðar mjólkandi kýr, sem fáanlegar væru til fóðurs. Þetta vakti Solveigu eigi lítinn geig. Og nærri Iá að kvíðinn setti að henni örvæntingargrát. Það voru líka fleiri undir húsþaki þeirra hjónanna en þau og börnin þeirra. Þar var einnig húskona með þremur börnum og því yngsta að eins sex sólarhringa gömlu. En Solveig gat ekki að því gert, að henni hvarf allur klökvi, er hún fór að hugsa um húskonuna og yngsta barnið hennar. Og það var því líkast sem þá gripi hana gremja, reiðiblönduð gremja. Hún gat ekki hvarflað svo huga til yngsta barns Ingveldar, húskonunnar þar, að henni kæmi ekki í hug Atli bóndi sinn, og það ekki sársaukalaust. Solveig hafði hugsað um þetta þrásinnis síðustu mánuðina. Alt af var henni það jafn-viðkvæmt, jafn- óviðráðanlegt. Og stundum var sem hefndarhugur gægðist fram í sál hennar. Atla bónda sinn hafði Solveig metið mest allra manna. Hún vissi það vel, að hann var ljúfmenni, skyldurækinn heimilisfaðir og dugnaðarmaður á sjó og landi. Og hún hafði líka talið sig hamingjusam- lega gifta. Hún vissi, að Atla var þvernauðugt að búa í Skor, þessu örreitis-útkjálkakoti, sem engin gæði hafði að bjóða önnur en þau, að þar var skamt til fiskjar og fuglveiði nærtæk, með dirfsku og mannhættu. Og lendingin þar, manndrápsskorin illræmda, með tveim þröskuldum, — ekki Iaðaði hún að sjer. Atla hafði líka borist þar á einu sinni. Af þessum örðugleikum öllum var hann búinn að fá meir en nóg og vildi flytja á betra býli, þar sem auðveldara væri að koma börnunum upp og til manns, ef auðna leyfði. En Skor vár föðurleifð hennar og þar var hún borin og barnfædd og hún hafði ekki getað fengið sig til að flytja þaðan. Henni var ódulið, að það var einungis hennar vegna, að Atli reyndi að berjast þar áfram með atorku og manndómi. En nauðugt var honum það, þótt hann ljeti aldrei orð um það falla. Þetta alt var Solveigu ódulið og ógleymanlegt, þangað til hann hrasaði — þangað til hann fjell með Ingveldi. . . . Ekki svo að skilja, að hann breyttist til neins, er miður væri í viðbúðinni. En brot var það — svívirðilegt brot af hans hálfu, fanst henni. Og hvernig átti hún að geta fyrirgefið slíkt brot? Hún gat ekki komið sjer niður á það. Það hlaut að skríða til skara í því máli. Þar varð hart að mæta hörðu, og eitthvert straff varð Atli að þola og ein-

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.