Óðinn - 01.01.1932, Side 1
1,—6. BLAÐ
OÐINN
JANÚAR—JÚNÍ 1932
XXVIII. ÁR
Líkneski Leifs hepna.
Til minningar um 1000 ára afmæli
Alþingis 1930 bárust Islandi margar
og merkilegar gjafir frá öðrum þjóðum.
Stjórn Bandarikjanna tilkynti við af-
mælishátíðina, að hún ætlaði að geta
líkneski af Leifi Eiríkssyni, sem fyrstur
hvítra manna fann Ameriku. Líkneskið
er nú komið hingað og hefur verið sett
á Skólavörðuhæðina, en varðan rifin.
Afhjúpunin hefur þó ekki enn farið fram.
Myndin er 10 fet á hæð og stendur á
15 feta háum fótstalli, sem er mynd af
skipsstefni úr rauðleitu forngrýli. Innan
á skipsstefnið er letrað: »Leifr Eiricsson
of Iceland, Discover of Vinland. — The
United States of America to the People
of Iceland on the one thousandth an-
niversary of the Althing A. D. 1930«,
þ. e.: Leifur Eiríksson frá íslandi, finn-
andi Vínlands. — Frá Bandaríkjum Ame-
ríku til íslensku þjóðarinnar á þúsund
ára afmæli Alþingis anno Domíni 1930.
Líkneskið er veglegt og vel gert lista-
verk. Höfundurinn er ameriskur mynd-
höggvari, Calder að nafni. Fjekk hann
verðlaunapening úr gulli fyrir myndina
á sýningu þar vestra síðastliðinn vetur.
1 annari hendi hefur Leifur krossmark,
sem er tákn þess, að hann kristnaði
Grænland, en sjálfur tók hann trú í Noregi.
■ ' *
lllfiltltfl
l
/
m i .,
V..' .
'ÍM:. ■ " i
H j
. .r]
I
1
i
■:viy - '7
lllil