Óðinn - 01.01.1932, Side 2

Óðinn - 01.01.1932, Side 2
2 ÓÐINN Þorfinnur Karlsefni. Ofar öldum ljómar, við elda fægð, himinborin helju-frægð. I. Úr myrkvið maður kemur, og mænir of auðan reit. Og augað við auðnir temur, sem enginn fyrri leit. Hann eygir firna fjöllin í fjarska við himinrönd, og finst þar ferleg tröllin i íjarvídd rjetta hönd. En sljettan næsta er nærri, og ný er lyfting sú, að eiga himin hærri en hellis-skúta trú. Því veröld víkkar, hækkar, og verður undrahöll. Og viskan vex og stækkar. Og vitund þróast öll. Og hafið blikar, og hylur mart, er hugann seiðir, dregur. Með tibrá-hilling og töfra-skart hinn tigni, frjálsi vegur. — Að fikrast eftir föllnum bol og finna ætisveppi, var áður nóg og aldaþol, og alt í sama hreppi. Og nýja leið, að nógum mat, var nýung ættarráði, sem inst í rjóðri eftir sat og allar frjeltir þáði. En íhalds-Iundin afla rík sló öllu því á dreifing. Og falla mátti fjöldi lík til framgangs þeirri hreyfing. En fleiri læddust farna slóð, og fundu sama blettinn. t*á dagaði uppi drunga þjóð, þvi dropinn holar klettinn. Þeir skutu á þingi og höfðu hátt, og höfðu að vopnum steina. Ný útsýn hefur undra mátt, á alla röskva sveina. Og aldir liðu. Og öldruð sveit við elda sögur tjáði um afrek forn. En æskan heit þann arfinn bestan þáði. Við örva-þyt og áraglam, með ægihjör í mundu. Og knáa drengi knýja fram, jók kapp í sveinsins lundu. Við árdagsblik og öldunið er útþrá þyngst að kefja. Um urð og klungur opnast hlið, og ekkert virðist tefja. Það hillir undir hetju-dáð, sem herðir þrek og vöðva. Og altaf verða einhver ráð, þó andúð vilji stöðva. Sindrar af silfur-klettum sólbirtu litaskrúð. Jafnframt af Jökulhettum jötun-dýrð alda prúð. Fjarlægðin fyllir skörðin, fegrar og prýðir land. Enginn sjer eyðibörðin, ellegar blásinn sand. II. Þorfinnur stendur við stýri, og stefnir í vestur-átt. Úrgar, hjá unnardýri, öldurnar rísa hátt. Jöklar við jaðar horfnir. Jakar á aðra hönd bergháir, brimi sorfnir. Brúnhvöss er ísaströnd. Særinn með silkiflosi seiðir þinn farmanns hug. Laðar með ljúfu brosi, lyflandi vekur dug.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.