Óðinn - 01.01.1932, Page 4

Óðinn - 01.01.1932, Page 4
4 ÓÐINN Og reisa þarna rausnarbú og ríki sinna niðja. En Vestanmenn, í víga-móð, þeir vörðu sveitarfesti. Þeim fanst þeir eiga feðraslóð, og fyrirbuðu gesti. Og það var skrítið þegnaval, sem þenna prýddi fundinn. Sem ekki skildi íslenskt tal, nje átti bæ við lundinn. En það var Ijóst, að Þorfinns lið var þeirra erkifjendur. Peir keyptu skrúð, að kaupmanns sið, en kusu að eiga lendur. Hjer var úr vöndu að skera. En viska Þorfinns sá, hið besta bjargráð vera, að berast þaðan frá. Til landnáms lítið dugði svo liðfá varnar-sveit gegn Iýð, sem helgast hugði, að halda sinum reit. Hann valdi vöru dýra og vistum skipið hlóð. Og kunni kjörum stýra, svo kaupin yrðu góð. Með sæmd, en sigri hálfum, þeir sigldu úr kosta vík. Og fremd var flokknum sjálfum, að finna úrráð slik. V. Til Grænlandsbygða lögðu leið. Og lágu vetur næsta við leiki, drykk og söngva-seið og sagna hornið glæsta. — — Er ísa leysti, ýttu úr vör. í austur skipi beindu. Og altaf verður fræg sú för, þótt íleiri svipað reyndu. Og hafið stilt þeim hló í mót, þeir hjeldu beinu leiði. Og brutu hvorki hönd nje fót, nje heyrðist stynja reiði. — Úr heiði bláu hýrleg sól þeim heita geisla sendi. — Þeir sáu Islands ysta hól sem opna vinar-hendi. Og heim þeir komu að Höfðaströnd með harðla veglegt nesti. Par mætti Þorfinns móðurhönd, og mikla hýsti gesti. En tengdadóttur tók hún ei án tafar sjer að hjarta. Úví riki skyldi ráða mey með rausnarlundu bjatta. En brátt það sást, að brúður var úr besta málmi slegin. Og þá var ekkert of gott þar, og amma næsta fegin. — Pau keyptu Glaumbæ, glæsta jörð, sem gladdi lundu ríka. Og orðstír barst um allan fjörð, og önnur hjeruð líka. VI. En eftir Þorfinns andláts stund hóf ekkjan suðurgöngu. Og göfugs páfa gekk á fund, með gætni í verki ströngu. Hin fyrsta kona fjarlægs lands, sem för þá inti af hendi, og efldi lifsþrótt ættarbands, svo upp til dáða bendi. Til Islands kom hún aftur heim með ennþá meiri sóma. Úólt ekki skiljist öllum þeim, sem öfund dýrka tóma. — Að hafa jafnan hreinan skjöld, og halda fast því sanna, er allra dýrust ævi-gjöld, og ofraun fjölda manna. VII. Það hafa margir haft þá lund í hópi fárra sveina, og alla sína ævi-stund og ákaflega reyna:

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.