Óðinn - 01.01.1932, Síða 11

Óðinn - 01.01.1932, Síða 11
Ó Ð I N N 11 og flytur kerlingar. Allir vilja reyna alt, en spurn- ingin er sú, hvort ekki verði alt á sviði andans jafnt, þegar í lófann kemur, — hvort andleg- ar hreyfingar, sem sprotnar eru af þjóðfjelags- legri ólgu, sjatni ekki þegar henni lýkur, af því að það, sem ólgunni veldur, er ekki and- legt, heldur líkamlegt hungur. Menn berast með straumnum og hljóta að gera það, en listin verður list eftir sem áður. Jeg geri ráð fyrir því, að Freymóður engu síður en aðrir sam- tiðarmenn vorir haíl orðið fyrir áhrifum ólgunnar, en verk hans sýna það, að hann hef- ur skilið, að listin væri söm við sig hvað sem öðru líður. Hitt kann að visu að vera, að sumum, sem hafa losnað af hestinum og mist baggann upp af klakknum, þyki Freymóður ekki vera kominn eins nærri sjávarmáli og þeir vildu vera láta. Freymóður hef- ur margar sterkar hliðar í list sinni. Skilningur hans á formi eralveg ótviræður og hagleikur hans á drátt frábær, en þetta hvorttveggja skapar fasta uppistöðu f hverja einustu mynd hans, jafnvel þær sem sístarkynnu að þykja. Freymóður hefur ennfremur fjarska glögt auga fyrir þvi, hvað vel fer í myndafleti af því sem listfengt auga og listfeng hönd geta gefið sjálfsfælt líf utan síns raunverulega sam- hengis, en það er í daglegu tali kallað að kunna að velja »motiv«. Flestum íslenskum málurum fremur er og Freymóður næmur fyrir áhrifum ljóssins og verkun þess á heildina. Geisli, sem skýst niður fjallshlið, bjarmi á tindi eða skuggi á vanga, setja oft sjerstakan svip á rnyndir hans, gefa þeim líf og setja á þær leifturblæ þess, sem sjeð var. Þeir menn, sem ekki hafa sanngirni til að skilja aðra, liggja Freymóði þungt á hálsi fyrir að hann hafi það til að vera of skær í litum, eða sem sumir kynnu að kalla of skjannalegur. Þetta er þó hvorki getuleysi eða smekkleysi, heldur hitt, að hann mun hafa orðið svo hrif- inn af sól og sumri Suðurlanda að hann vill reyna að tengja það við skammdegið okkar, en vill þó gleymast það sem skáldið Horatius segir um málarann, sem vill tengja mannshöfuð við hesthnakka — að lsland er ekki suður á Italíu og ltalía ekki norður á íslandi. Það má líka, ef vill, kalla þelta hugmyndaflug, en íslenskir lista- menn nú á dögum eru síður en svo myrkfælnir við að láta skæri sín rata furðulegar götur, svo að þeim mundi varla verða flökurt, ef þeir hefðu gert það sjálfir, og því síður ef Matisse eða Cour- bet eða aðrir jafn- ágætir menn hefðu gert það. Það spill- ir ef til vill ekki að segja hjer þann, að vísu ekki alveg spánnýja sannleika, að enn hefur engin listastefna fengið einkarjett á listinni. Um viðfangsefni er Freymóður ekki við eina fjöl feldur. Hann málar Iandslög, manna- myndir, dýramyndir og myndir úr daglegu lífi (genremálverk), og í öllum þessum myndum koma sömu eiginleikar í ljós, en á því má marka, að hann sje búinn að ná föstum tökum á handbragði sínu (teknik). Um mannamyndir hans er þess sjerstaklega getandi, hvað þær eru trúar, og hafa sumir, sem eru elskir að kössum ljósmyndaranna, þar sem alt er fært til betri vegar sem kallað er, þótst þurfa að finna að því. Freymóður er einstakur reglumaður um alt. Áfengi hefur hann aldrei bragðað og tóbaks neytir hann ekki í neinni mynd. Iðjusemi hans er frábær, og liggur því margt eftir hann, — margt ágætt, margt gott, ýmislegt miðlungi en fátt ljelegt. Það stenst auðvitað enginn, að hann sje borinn saman við sjálfan sig þar sem hann er bestur, því öll mannleg störf eru misjöfn. Það birtast hjer myndir af nokkrum verkum eftir Freymóð frá síðustu árum. Því miður eru Síldarvinna.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.