Óðinn - 01.01.1932, Síða 27

Óðinn - 01.01.1932, Síða 27
Ó Ð I N N 27 mentunar í æsku. Fræðslumálum var þá þann veg farið meðal alþýðu, að eigi var hirl um að kenna börnum annað en lestur, svo þau gætu lært kverið og þar með komist í kristinna manna tölu. Þeir sem vildu læra að skrifa og reikna urðu venjulega að sjá sjer fyrir kenslu sjálfir, þar á meðal var hann. Á hjelaðar gluggarúður dró hann fyrstu stafina, en úti var broddstaf- urinn penninn og hjarnið pappírinn, og tímann fjekk hann til þess, þá er hann gætti fjár föður síns. Á þennan hátt tókst honum að ná góðri rithönd og það sem meira var, furðugóðri rjett- ritun llka, mun hann þar hafa sýnt sama áhuga og hann jafnan sýndi við vinnubrögð sín, þar sem saman fór hæði vandvirkni og stórvirkni. Nokkur sumur var hann flokksstjóri við vega- lagningar landssjóðs, er til þess tekið hve vel þeim flokki vanst er hann stjórnaði, enda var hann eigi þannig innrættur, að honum fyndist viðeigandi að vinna ver hinu opinbera en öðr- um vinnuveitanda, var hann þar jafnan fremst- ur í flokki er mest þurfti við í hverju verki og dró eigi af sjer, enda leyfðist engum, er undir hans stjórn var, að dunda við vinnuna. Eitt sinn spurði jeg mann, sem unnið hafði í flokki Sigurðar, hvort hann hefði ekki verið vinnuharður umof. »Víst var hann vinnuharður, en svo rjettlátur og sanngjarn, að enginn gat með rjettu að því fundið«. Sjest á því meðal annars, að hann hef- ur haft góða hæfleika til mannaforráða. Hann var stór maður vexti og fríður sýnum, prúður í framgöngu og fyrirmannlegur, og var eitthvað það í Iátbragði hans og framkomu allri, er olli þvi að enginn eða fáir munu hafa leyft sjer að troða hann um tær sem kallað er. Fast- ur var hann á sinni skoðun, fremur fálátur en þó viðkynningargóður, valdi sjer eigi marga að vinum, en var vinavandur. Glöggur á skapgerð manna og hæfileika en þó laus við alla dóm- herslu í garð annara. Var hann svo grandvar maður i orðum, að jeg minnist ekki að hafa þekt neinn honum fremri í því. Reglusamur með afbrigðum bæði í daglegu lífi og viðskift- um. Hann var í fáum orðum sagt einn þeirra fremur fágætu manna, sem með lífi sínu og íramkomu leggja ýmiskonar verðmæti í skaut samtíðar og framtíðar, enda þótt starf þeirra liggi ekki á sviði opinberra mála. Því vildi jeg óska þessari þjóð til handa, að henni mætti auðnast að eignast sem flesta syni líka Sigurði sál. að atgervi og mannkostum. Þá myndu vel skipast ýms sæti þessa þjóðfjelags, bæði æðri sem lægri, því sitja mundi þar að völdum hin volduga þrenning, trúmenska, sann- leiksást og dugnaður. Laugarási i marz 1932. Anna Eggertsdóttir. Sl Vatnið hnfgur af háum fjöllum. Vatnið hnígur af háum fjöllum; hnigur á hvössu grjóti. — Ilt er að binda ást við þann, sem enga leggur á móti. Vatnið hnigur af háum fjöllum; hefur svo margt i för. Sumum færir það fagran söng < og fagurt bros á vör. Vatnið hnígur af háum fjöllum; heldur svo mörgu að eyra. Jeg heyrði i gljúfri harma kvein, hlátur og sitt hvað fleira. Vatnið hnigur af háum fjöllum; hnígur i djúpan ál. Sumum verður það svala lind; sumum banaskál. Vatnið hnigur af háum fjöllum; hnigur svo langt og víða. — Hefur þú gengið í grænan lunnd; gengið til vorsins tíða? Vatnið hnígur af háum fjöllum; hnígur i kolblátt djúp. Enginn veit hvað undir býr álsins skuggahjúp. Vatnið hnígur af háum fjöllum; hnigur með dyn af sorgum. — Næsti dagur skautar skarti á skýjaborgum. S. Fr. I f ú

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.