Óðinn - 01.01.1932, Side 28
28
ÓÐINN
Nicolaj Ðjarnason.
Hann er fæddur í Vestmannaeyjum 22. des-
ember 1860, og fór ungur að stunda verslun
hjá H. E. Thomsen, kaupmanni. Til Kaup-
mannahafnar fór hann haustið 1879 og var þar
við verslunarnám um
veturinn, en kom heim
sumarið 1880. Haust-
ið 1882 bauðst honum
starf hjá Fischersversl-
un hjer í bænum, og
tók hann því og kom
hingað 26 október það
ár. Næstu 12 ár vann
hann við Fischers-
verslun hjer í bænum,
en árið 1894 fluttist
hann til Keflavíkur og
tók þar við verslun
Fischers, sem þá var
fremur lítil. Veitti hann
henni forstöðu í 6 ár,
og óx hún mikið á
þeim árum og varð
mjög vinsæl undir
stjórn hans.
Árið 1900 var hon-
um falið að taka við
Fischersverslun hjer í
bænum, þegar verslun-
arstjórinn, Guðbrand-
ur Finnbogason, and-
aðist. Eftir það varhann
verslunarstj. Fischers-
verslunar þangað til
hún var seld 1904. Þá rak hann sjálfur verslun
nokkur ár og hafði á hendi afgreiðslu flóabáts-
ins Ingólfs. Hann áttt og þátt í þilskipaútgerð
um skeið, og hestvagna hafði hann hjer lil
fólksflutninga áður en bifreiðaferðir hófust. Árið
1908 varð hann afgreiðslumaður Bergenska
gufuskipafjelagsins, og hefur verið það síðan.
Bergenska fjelagið hóf siglingar hingað það
ár, og voru þá ekki önnur fjelög fyrir en
Sameinaða fjelagið ogThore. Var því að vonum
fagnað þeim samgöngubótum, sem urðu bjer
við komu Bergenska fjelagsins, en að öðru
leyti má segja, að það hafi jafnan notið vin-
sælda þessa fyrsta afgreiðslu manns síns hjer
í bænum.
Nic. Bjarnason festist mönnum vel í minni
við fyrstu kynni. Hann er mikill vexti, þrekinn
mjög og karlmannlegur, hýr og glaður og hlý-
legur í umgengni og gerir sjer engan manna-
mun. Ekki vita menn lil þess að hann eigi neina
óvildarmenn, en vinir
hans eru margir, jafn-
vel þó að þeir, sem
hann kyntist hjer á
fyrstu árum sínum í
Reykjavík, sjeu nú nær
allir fallnir frá. Hann
ber aldurinn ágæt-
lega, bæði í andleg-
um og líkamlegum
skilningi, hefur jafnan
verið við bestu heilsu
og gengur að öllum
sínum störfum með
óbreyttum dugnaði.
Hann hefur oft farið
utan og stundum
dvalið langdvölum er-
lendis og meðal ann-
ars ferðast víða um
Býskaland. Þær miklu
framfarir, sem hjer
hafa orðið síðan hann
kom hingað fyrst, hafa
ekki komið honum
neitt óvart. Hann hef-
ur sjálfur tekið þátt í
þeim og yngst með
þeim, en aldrei dreg-
ist aftur úr eða verið
athafnalaus áhorfandi. Nic. Bjarnason kvæntist
7. sept. 1893 Önnu Thorteinsson, dóltur Þor-
steins Thorsteinsson kaupmanns og alþingis-
manns frá Isafirði. — Börn þeirra fjögur eru
öll á lífi og barnabörn 14.
Sl
Lögrjetta, Henni var breylt í tímarit um síðastliðin
áramót, og verður hún stærsta tímarit landsins, á að
koma út i 6 heftum árlega, með fjölbreyttu efni, m. a.
yfirlitsgreinum um útlend mál, eins og áður. Ritstjórar
eru Porsteinn Gíslason og Vilhj. P. Gíslason magister.
Nicolaj Bjarnason.