Óðinn - 01.01.1932, Side 32

Óðinn - 01.01.1932, Side 32
32 Ó Ð I N N Líkfylgd Nikulásar. fremur. Hann vildi í engu vamm sitt vita. Jeg hygg, að hann hafi verið vin- sælasti bóndinn í Flateyjarhreppi um sína daga. Honum heyrði jeg aldrei hallmælt. Hvernig sem öldur risu í hjeraðsmálum og pólitík sat Nikulás altaf á »friðstóli« og öllum var vel til hans. Þó er það enn ótalið, sem einkendi Nikulás flestum fremur og var einn af hans bestu kostum, en það var greið- vikni hans og hjálpsemi við hvern sem í hlut átti. Hann vildi leysa hvers manns vandræði. — En nú er hann fallin frá, Yfirlætislausi, prúði og góðviljaði bóndinn í Sviðnum er genginn til feðra sinna og liðsinnir ekki fleirum hjerna megin grafarinnar. En ætti hann þess kost, að rjetta þeim hjálparhönd, sem hjálparþurfa eru hjer á jörðinni, mundi ekki viljan skorta. Minning hans er óvenju verðmæt. Sje hugurinn látinn dvelja við minningarnar, sem Nikulás ljet eftir sig, slær bjarma á veginn. Bergsveinn Skúlason. Til skóiastjóra Sigurðar Jónssonar á sextugsafmæli hans 6. maí 1932. Heill sje hara snjöllum. Hróður syng jeg bróður svinnum vel, er sinnir sjót í tímans róti. Rjett hann reiknar sjetta runninn tug í unnir. Yngja ár hinn slynga. Enn er list i penna. Forðum vann með fyrðum fjölda starfa höldur, fræddi Iýð og leiddi, ljeði öllum gleði, taldi tvítuggildur tölur oft í sölum, kindir flestar kendi, kallaði þær að stalla. Vitur valdabeitir var í hverju svari, hóf á öllu hefur, hafinn yfir skrafið, dylur skap og skilur skaða reikuls hraða, dæmir væga dóma, drengur reynist lengi. Sól úr loflsins sölum signi geislum iignum fyrirmann á frerum, fríðu liði blíðan. Brosi blóm í grasi besta vorsins gesti, heiði hjúpað roða handar bendi anda. Hallgr. Jónsson, Samúel Eggertsson og Marta E. Stefánsdóttir. Samúel Eggertsson er fæddur að Melanesi í Barðastrandarsýslu 25. maí 1864, sonur Eggerts Jochumssonar frá Skógum við Þorskafjörð (1833—1911), eins hinna svonefndu »Skóga- bræðraw, sem margir kannast við, og fyrri konu hans Guðbjargar Ólafsdóttur frá Rauðamýri í lsafjarðarsýslu, Bjarnasonar frá Arngerðareyri (1827—1890). Voru þau hjón bæði vel gefin og talsvert ólik. Hann var fremur hneigður til menta en líkamlegrar vinnu, var þó góður verkmaður, þegar hann stundaði almenna vinnu. Skáldmæltur var hann vel, eins og hann átti kyn til og orkti oft hnittnar vísur og kvæði. Hann var listaskrifari. Lengi stundaði Eggert barnakenslu, um eitt skeið við skólann á ísa-

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.