Óðinn - 01.01.1932, Síða 34
34
ÓÐINN
Gísli Jónsson (Hvanndal) og
Guðborg Ingimundardóttir.
Gísli sál. var fæddur í Ytri-Galtavík í Skil-
mannahreppi 3. marts 1895, sonur Jóns ólafs-
sonar bónda þar
og konu hans
Sesselju Þórðar-
dóttur. Hann
misti móður sína
5 ára gamall og
ólst upp hjá
föður sínum og
seinni konu hans,
Guðrúnu Jó-
hannesdóttur. —
En Guðborg sál.
var fædd 20. des.
1896, að Staðar-
hóli í Dalasýslu,
dóttir Ingimund-
ar Jónssonar og
Jakobínu Magn-
úsdóttur. Gísli og
Guðborg giftust
árið 1920 og
dvöldu fyrsta ár-
ið í Reykjavik.
En árið eftir dó
faðir Gísla og
fluttu þau þá
að Ytri-Galtavik.
Þar bjuggu þau
í rúm 8 ár,
eða þar til Gísli
andaðist 27. nóv.
1929. Eftir lát
Gísla sál. brá
kona hans búi og seldi jörðina. Fluttist hún
þá vestur í Dalasýslu og giftist þar, 31. maí 1931,
Guðmundi Theódórssyni, kaupfjelagsstjóra í Stór-
holti, hinum mesta sæmdarmanni. Voru þau í
hjónabandi hálfan þriðja mánuð, en þá andað-
ist hún, eftir stutta en stranga legu.
Gísli og Guðborg eignuðust sex börn, var hið
elsta 9 ára, en yngsta 3 mánaða, er faðirinn dó.
Gisli var hið mesta prúðmenni í allri fram-
komu, enda hvers manns hugljúfi. Hann var
karlmenni að burðum og var því mjög sókst
eftir honum til vinnu hvort heldur til lands
eða sjávar, útsjónarsamur og hygginn búmaður.
Hann stundaði sjómensku á togurum á vetrar-
vertíðinni, samfara búskapnum, þar til heilsa
hans bilaði, þá hætti hann því aukastarfi og
stundaði búskap af alefli, og var konan honum
styrkur í öllum
störfum, því hún
var mesta dugn-
aðarkona, geð-
prúð og glaðlynd,
og bar heim-
ili þeirra fagurt
vitni um hús-
móðurhæfileika
hennar. — Þegar
Gísli og Guð-
borg byrjuðu bú-
skap í Galtavik
áttu þau sama
sem engar eign-
ir. Fyrst höfðu
þau jörðina á
leigu.enfestu sið-
ar kaup á henni.
Græddu þau út
túnið og girtu
alla landareign-
ina, bygðu gripa-
hús og ágæta
hlöðu. — Hann
vann alt af á við
tvo meðalmenn,
að hverju verki
sem hann gekk,
enda var alt af
vitnað í dugnað
Gísla í Galtavik,
þegar á hann var
var minst af nágrönnum hans og samsýslungum.
Er það undravert, hve þeim Gísla og Guð-
borgu græddist mikið fje, þann stutta tíma er
þau bjuggu í Galtavík. Með alla ómegðina þá
vildu þau aldrei þiggja neitt af öðrum, nema
yfirborga það aftur. Þegar búið var gert upp, var
skuldlaus eign þess talin 16000 krónur. Hjer
voru að starfi hjón með 6 börn i ómegð, og
má nærri geta, að til þessa hefur þurft ráðdeild
og framúrskarandi dugnað, enda höfðu þau
báða þessa kosti í ríkum mæli. Ó. J. Hv.