Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1888, Síða 11
139
dómum, þróast þá betur og breiðast fljótar út,
þegar einstaklingarnir lifa saman í þéttu félagi.
Samkeppni tegundanna er opt fjarska marg-
brotin, og orsakirnar eru opt svo fjarstæðar, að
menn finna þær ekki fyr en eptir langar og örð-
ugar rannsóknir. Darwin færir ýms dæmi til þessa.
Á jörð einni í StafFordshire kom Darwin opt til
vinar síns, er þar bjó, og tók þar eptir ýmsu; þar
voru víðáttumiklir og ófrjóir lyngmóar, og hafði
aldrei verið hreyft við þeim, nema hvað þar höfðu
verið plantaðar furur á töluverðu svæði og girt um
það; eptir 25 ár var þessi umgirti blettur orðinn
fjarska ólíkur því, sem hann var í fyrstu; lyngjurtir
voru þar sárfáar, en 12 plöntutegundir uxu þar,
sem hvergi voru til í móunum ; þar voru allt aðrar
skordýrategundir en á lyngheiðunum, og 6 nýjar
fuglategundir lifðu á þessum skordýrum. Hér hafði
ekki verið gjörð nein breyting önnur en sú, að
bletturinn var girtur og friðaður, svo fénaður komst
þangað ekki. Furur gátu hvergi vaxið fyrir utan
girðingarnar, því fénaðurinn nagaði af frjóangana
jafnótt og þeir komu upp úr moldinni. í Para-
guay eru hvorki til villinaut né villihestar, og þó
er ótölulegur grúi til af þessum dýrum á Pampas-
sléttunum bæði fyrir norðan og sunnan. Náttúru-
fræðingarnir Azara og Rengger hafa sýnt hver or-
sök er til þess: í Paraguay er flugutegund ein mjög
algeng, sem verpur eggjum sínum í naflann á ný-
fæddum kálfum og folöldum, svo það verður þeirra
bani. Aðrar skordýrategundir eru til í hinum hér-
uðunum, er eyða þessari flugu, svo þar geta villi-
naut og villihestar lifað og þróast. Ef nú þeim
fuglum í Paraguay fækkaði, er lifa á skordýrunum,
er síðar voru nefnd, þá mundi líka fækka flugunum,
en hestar og naut mundu fjölga; við það yrði apt-