Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1888, Side 52
180
vanizt upp á efri hliðina hjá lúðunum, af því það var
hentugast fyrir þær.
Eitt af því, sem Mivart álítur að sé óskiljanlegt
eptir kenningu Darwins, eru mjólkurkirtlar, brjóst
og spenar spendýranna, en Darwin sýnir fram á
þær breytingar og ummyndanir, sem hafa kornið því
líffæri til leiðar. Spendýrin eiga að ætlun hans kyn
sitt að rekja til pokadýranna, og þar lifa ungarnir
framan af æfinni, meðan þeir eru mjög ófullkomnir,
innan í poka undir kvið móðurdýrsins; þar verða
menn því að leita að uppruna þessa líffæris. f>að
hefir orðið að vera mikill hagnaður fyrir hvert dýr,
að geta fengið sem bezta næringu, meðan þau voru
ung og óstyrk, og hefir því náttúran smátt og smátt
valið þau dýr til undaneldis, sem mestan og beztan
mjólkurvökva höfðu. Hjá einni fiskaætt (Hippocam-
pus) eru lík líflfæri; þar ungast hrogin út í dálitlum
poka, ungarnir haldast þar við framan af æfinni, og
eptir sögn náttúrufræðingsins Lockivood, þá eru þar
líka kirtlar með næringarefni fyrir ungviðið.
Innanum broddana á ígulkerunum eru merkileg
verkfæri, nokkurskonar tangir (pedicellaríur), eins og
þríörmuð sagtennt skæri á hreyfanlegum stikli; með
þessum töngum geta dýrin gripið ýmsa smáhluti t.
d. óhreinindi, og rétt þau töng frá töng yfir þvera
skelina. Mivart getur ekki skilið í því, að þessi
verkfæri séu fram komin við smáar breytingar og
úrval náttúrunnar. Alexander Agassiz hefir nákvæm-
lega rannsakað þessi verkfæri; þau eru ekki að eins
til hjá ígulkerum, heldur einnig hjá krossfiskum og
fleiri dýrum af sama flokki; í byggingu þessara
líffæra eru margir milliliðir, sumstaðar er þriðji arm-
ur tangarinnar mjög lítill, sumstaðar eru að eins
tveir. Agassiz segir, að tangirnar séu að eins um-
myndaðir broddar ; þetta sést bæði á uppvexti og