Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1888, Page 89
217
og lærða manni Gamborg dvaldi Magnús í 3 ár
samfleytt i bezta gengi og vináttu, og numdi mörg
lífsins heilræði af þeim hálærða og guðhrædda pró-
fessore philosophiæ Gamborg, sem þangað jafnað-
arlega kom og dvaldi þar hjá bróður sínum. Laur-
us Sneefield, bróðir Hallgríms prests Jónssonar f
Görðum á Akranesi, var einhver hinn spaklynd-
asti, ráðvendnis og gáfumaður, þá copi-isti í rentu-
kammerinu, með hverjum Jón sál. Eiríksson hjelt
allt af í hönd, sökum gáfna og siðprýði hans; lika
vegna þess, að hann var honum undirgefinn em-
bættismaður, þarhjá bróðursonur Skúla landfógeta,
vinar hans, samt var hann ei valinn Magnúsi til
ráðaneytis i mörgu, því hann var ætíð sí-þurfandi,
óframsýnt góðmenni, sem unti flöskunni um of, en
ætíð virti Magnús gáfur hans og hjartalag og varð
honum opt til athvarfs síðan, allt til hans sviplega
viðskilnaðar1.
1) Hann deyði sviplega, veturinn 1786, kom til M. St.s í
ljósaskiptum um kvöld; sá M. St. liann þá leiðast með F. Jóns-
syni* og J>. Liliendal** að húsdyrum sínum ; stóðu þeir úti
meðan hann fór inn vel kcnndur og bað M. St. lána sjer 1
rdl. þessi svaraði: „Nei! engan skilding í kvöld, því nú ertu
of drukkinn11, og hvarf hann á burt svo búið. Fylgdust svo
hinir 3 að á eitthvert drykkjuhús, urðu þar svo of drukknir, að
eigi komust þaðan um kvöldið, en voru allir3 kasaðir saman í eitt
rúm. Um morguninn fannst Sneefield kafnaður undir þeim,
hvar um landfógeti Skúli Magnússon, þá staddur í Kaupm.höfn,
strax hóf mál og ljet lækna-skoðunargjörð fram fara, en full-
nóg vitni skortu, svo við málssóknina var hætt.
* Finnur, sonur Jóns biskups Teitssonar, tók ekki embættispróf
við háskólann, en fjekk þó Borgarfjarðarsýslu 1794, og síðan
Snæfellsnessýslu 1796, i skiptum við Jón Espólín, sem aptur
fjekk Borgarfjarðarsýslu. Finni var vikið frá embætti 1804 og
drukknaði 1807 i Grafará i Skagafirði. Útg.
** þórarinn Liliendal var sonur sira Sigvalda Halldórssonar á
Húsafelli. Hann tók heldur ekki embættisp-óf við háskólann,
en var scttur fyrir Borgarfjarðatsýslu 179 : og dó árið eptir. Útg.