BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Qupperneq 28
Fjölbreytilciki mótorhjóla
Það gera allir sér Ijóst að bílar flokkast undir
ýmsa notkunarhópa og tegundirnar eru næstum
óteljandi. En hér á íslandi gætir meiri þröngsýni í
garð mótorhjólanna sem eiga reyndar miklu betra
skilið. Hjólið var jú framleitt á undan bílnum og má
segja að bíllinn sé hannaður upp úr hjólinu. Hjólið
sjálft hefur gengið í gegnum mörg breytingaskeið
og má líkja þróuninni við ættartré mannkynsins.
Fyrst kom þetta einfalda, tveggja hjóla, fótstigna
apparat með gríðarstórt framhjól sem síðan hefur
getið af sér: götuhjól, enduro hjól, móto-cross hjól,
þríhjól, kvartmíluhjól, stríðsframleiðsluhjól og svo
framvegis, en þessar megingerðir flokkast svo
enn betur í tegundir og gerðir frá hinum ýmsu
framleiðsluþjóðum.
Hérlendis hafa notkunarmöguleikar hjóla ekki
verið eins miklir og erlendis aðallega vegna
veðursins, en upp á síðkastið hefur nokkrum
gerðum fjölgað verulega og mætt mikilli and-
spyrnu fólks sem takmarkaða þekkingu hefur á
hjólum og dæmt þau öll „stórhættuleg farartæki
sem helst ætti að banna“. Þetta er ekki réttlátt og
er meiningin með þessari grein að skyggnast
örlítið inn í frumskóg mótorhjóla og sýna fram á
réttileika þeirra.
En fyrst verður fólk að gera sér Ijóst. „Það er
ekkert farartæki hættulegt, heldur hegðun ein-
staklingsins." Á þetta við um flugvélar, bíla, báta,
hjól og alla aðra dauða hluti. Mótorhjól gæta hins
vegar örlítillar sérstöðu vegna bess að heim stúra
Skellinöðrur: Þetta er dálítið stór hópur hjóla. Yfirleitt eru litlar vélar og lágur hámarkshraði ein-
kennandi fyrir þennan hóp. Meðfylgjandi myndir sýna 1. venjulegaskellinöðru, 2. Búðarsnatt-
hjól, 3. Samanbrjótanelgt ferðahjól til dæmis til að hafa meðferðis í bílnum efhann skyldi bila.
SKELLINAÐRA
Þetta eru létt og meðfærileg hjól
með 50 cc vél sem skilar ekki miklu
afli, komast yfirleitt í um 60 km hraða.
Það eru hins vegar margar gerðir til af
hjólum sem flokkast undir skellinöðru
en það er sameiginlegt þeim öllum að
vélin er ekki stærri en 50 rúmcenti-
metrar. Slík stærð getur þó skilað
hestöflum alveg frá 1 og upp í ca. 15
sem þó er mjög sjaldgæft. Skelli-
naðra er til í götuhjóla, torfæru,
búðarsnatt og keppnishjóla útgáfu.
Kemur sem sagt inn á öll svið
mótorhjóla en er bara minnkuð út-
gáfa.
28