BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Side 30
Þríhjól: Tiltölulega nýgerð farartækja. Eru bæði til sem landbúnaðartæki og fjölskylduleikfang eða sem aivöru keppnis-
hjól, þá með fjöðrunarútbúnaði. Einkennandi hvað stór og mikil dekk eru undir hjólunum og kemur það sér vel f votlendi
eða í snjó.
ÞRÍHJÓL
Undir þennan hóp má telja mótorhjól meö
hliðarvagn svo og hina nýju gerð þríhjóla sem
hafa mjög breið kubbadekk og komast léttilega
yfir mýrlendi, snjó og aðrar torfærur. Fara inn á
svið vélsleða en koma einnig að gagni á auðu
landi. Auðveld í notkun og er vaxandi eftir-
spurn eftir þeim sem vinnuþjarki fyrir bændur,
fjölskylduleikfangi eða bara sem farartæki í öllum
veðrum.
KVARTMÍLUHJÓL
Eru sérbyggð venjulega upp úr stærri götu-
hjólum.
Vonandi verður þessi grein til þess að
opna augu einhverra gagnvart mótorhjólinu og
notkunarmöguleikum þeirra. Þau eru ekki ein-
göngu fyrir kolvitlausa krakkaglanna. Og að
endingu lesandi góður, næst þegar þú ekur fram
á mótorhjól í umferðinni, hugsaðu hlýlega til
ökumanns hjólsins.
SKORDÝRABÍLLINN
Því er ekki að neita að þessi bíll, ef bíl skyld'
kalla, líkist í fljótu bragði augnstóru skordýri-
Hann er hins vegar ökufær og á meira að
segja að geta náð 320 km hraða. En aða1
tilgangur smíðarinnar var að útbúa virkilega
athyglisverðan sýningargrip og sýnist ykkur
ekki að það hafi tekist allbærilega? Að
sjálfsögðu voru það ameríkanar sem smiðuðu
gripinn.
30