BFÖ-blaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 5

BFÖ-blaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 5
Könnun Hagvangs fyrir Bindindisfélag ökumanna: Flestir hlynntir víðtækari notkun bílbelta Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í nýrri könnun Hagvangs fyrir Bindindisfélags ökumanna er fylgjandi víðtækari skyldunotk- un bílbelta en nú er, meðal annars í skólabíl- am og leigubílum. Könnunin, sem gerð var í september 1990, náði til 1540 karla og kvenna á aldrinum frá 15 ára til 79 ára. Svörun var um 78%. Fjórar spurningar um afstöðu til bílbelta- notkunar voru lagðar fyrir þátttakendur. Fyrst var spurt: Ertu hlynnt(ur) eða andvígur skyldunotkun bílbelta í skólabílum? Síðan var spurt: En í áætlunarbílum og hópferðabíl- um? En í leigubílum? En í strætisvögnum? Afstöðu til spurninganna tóku 980-1150 manns, flestir höfðu skoðun á þessu máli varð- andi leigubíla. Mestur stuðningur var við skyldunotkun bílbelta í skólabílum, eða um 93%, síðan komu leigubílar, 90%, og áætlunarbílar og hópferðabílar, 71%. Innan við helmingur styður skyldunotkun bílbelta í strætisvögn- um, eða um 40%. Konur eru mun hlynntari þessum hugmyndum en karlar. Hins vegar er lítill munur á afstöðu fólks eftir búsetu og aldri. Eftir breytingu á umferðarlögunum á þessu ári er skylda að nota bílbelti í framsætum og aftursætum fólksbifreiða. Svo undarlega sem það má virðast er farþega í framsæti leigubíls skylt að vera með bílbelti, en hvorki öku- manni né farþegum í aftursætum. Þá eru ekki nein ákvæði um bílbeltanotkun í hópbifreið- um (áætlunarbílum, hópferðabílum, skólabíl- um og strætisvögnum), en sums staðar erlend- is hafa verið settar reglur um það. Leitað var álits Óla H. Þórðarsonar, fram- kvæmdastjóra Umferðarráðs, á niðurstöðum þessarar könnunar. Hann sagðist vera mjög ánægður með þá jákvæðu afstöðu sem þarna kæmi fram til notkunar bílbelta. Reyndar kæmi hún ekki mjög á óvart þar sem greinileg hugarfarsbreyting hefði orðið á síðustu árum til hvers konar öryggisbúnaðar. Á næsta ári verða umferðarlög endurskoðuð og telur Óli að án efa verði í frumvarpi til nýrra umferðar- laga lagt til að beltaskylda verði í skóla- bifreiðum og aftursætum leigubifreiða og mjög trúlega í fremstu sætaröðum annarra hópferðabifreiða. Óli benti á að þótt bílbelta- notkun í strætisvögnum nyti ekki eins almenns stuðnings og í öðrum ökutækjum mætti hugsa sér að sett væru belti í hættuleg- ustu sætin í vögnunum, það er fremst og aftan við útgöngudyr að aftan. -jr. Alls Karlar Konur Hlynntir skyldunotkun bílbelta - í skólabílum 93% 88% 98% - í leigubílum 90% 85% 94% - í áætlunarbílum og hópferðabílum 71% 60% 82% - í strætisvögnum 40% 28% 54%

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.