BFÖ-blaðið - 01.11.1990, Page 28
Ökuleiknin 1990:
Bíllinn gekk út
Ökuleikni ’90 hófst með Pressukeppni við
bílaumboðið Heklu mánudaginn 11. júní. Þar
mættu keppendur frá flestum fjölmiðlunum.
Almenna keppnin hófst síðan rólega af ýms-
um orsökum. I fyrstu keppnunum bar mikið á
því að heimsmeistarakeppni í fótbolta stóð
yfir. Fjöldi þátttakenda jókst er leið á keppn-
ina. Það sem er athyglisverðast með fjölda
þátttakenda er að á minni stöðunum eru oft
fleiri keppendur en á þeim stærri. Það urðu
breytingar á samstarfsaðila með bíla en
Hekla kom til samstarfs við Ökuleiknina, vilj-
um við þakka þeim einstaklega lipra og góða
þjónustu á síðustu stundu við að útvega bíl til
nota fyrir Ökuleiknina.
Ökuleikni 90 fór fram á 36 stöðum á land-
inu. Þátttakendur voru 303 í bifreiðarakstri
og á reiðhjólum 528.
Sigurvegarar á hverjum stað áttu kost á því
að koma til úrslitakeppni sem haldin var við
bifreiðaumboðið Heklu í Reykjavík 1. og 2.
september 1990.
Sigurvegarar í úrslitakeppni voru:
Garðar Ólafsson fékk bíl fyrir að fara villulaust í
úrslitakeppninni.
Kvennariðill: Sigurvegari Auður Yngva-
dóttir með 616 refsistig. Önnur varð Þóra Vík-
ingsdóttir með 726 refsistig. Þriðja varð
Guðný Guðmundsdóttir með 789 refsistig.
Karlariðill: Sigurvegari varð Þráinn Jens-
son með 434 refsistig. Annar varð Garðar
Ólafsson með 505 refsistig. Þriðji varð Bjarni
Ólafsson með 544 refsistig.
Sigurvegarar íkarlariðli: Garðar, Þráinn ogBjarni.
Sigurvegarar í kvennariðli: Guðný, Þóra og Auður.
28