Tölvumál - 01.11.1987, Blaðsíða 5
FRÉTTAPISTILL
Kunnugir telja að með sameiningu fyrirtækjanna Gisla J.
Johnsen og Skrifstofuvéla sé hafin sú uppstokkun á einka-
tölvumarkaðnxam, sem spáð hefur verið um hrið. Talið er að
hún muni leiða til fækkunar söluaðila vegna sameiningar eða
lokunar. Menn telja ekki ólíklegt að á næstu mánuðum megi
vænta fleiri stórtíðinda af þessum vettvangi.
Bæjarfélagið i Angmagsalik hefur nýlega keypt tvo MicroVAXa
og hefur uppsetning þeirra þegar farið fram. Og hvað er
svona merkilegt við það, kann einhver að spyrja? Jú,
búnaðurinn var settur upp af starfsmönnum Kristjáns Ó.
Skagfjörð h.f. og mun verða þjónustaður af því fyrirtæki.
Ef hann bilar fer bilunarleit fyrst fram frá Skagfjörð
vélrænt i gegnum símkerfið. Ef fara þarf á staðinn til
viðgerðar munu verða notaðar einkaflugvélar og þyrlur til
að koma mönnum og búnaði á staðinn.
í septemberfréttabréfi frá Örtölvutækni, sem er reyndar
fyrsta fréttabréf fyrirtækisins, er sagt frá þvi að
hlutabréfum hafi verið fjölgað um þriðjung og Mikró hafi
keypt alla hlutabréfaaukninguna, kosin hafi verið ny stjórn
og innri skipan fyrirtækisins endurskoðuð. Þeir Míkrómenn
komu þannig inn i stjórn fyrirtækisins, að Ágúst Guðmunds-
son tók sæti í stjórninni en Eggert Claessen var ráðinn sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Það vekur þvi athygli nú
að Eggert Claessen skuli vera hættur hjá fyrirtækinu.
Þrátt fyrir þetta munu eigendur nú bjartsynir um framtíð
fyrirtækisins í framhaldi af þeirri endurskipulagningu sem
þegar hefur farið fram.
Tölvufræðslan sem er útgefandi bókarinnar um Macintosh
hefur ásamt fleirum stofnað fyrirtækið "Nordisk Data
utveckling", til þess að markaðssetja bókina á Norðurlönd-
um. Fyrirtækið hefur nú þegar tryggt sölu og dreifingu
bókarinnar i Sviþjóð á vegum Apple fyrirtækisins. Sölu-
horfur eru og taldar mjög góðar á hinum Norðurlöndunum.
5