Tölvumál - 01.11.1987, Blaðsíða 7
ERINDI ÓSKAST
" CALL FOR PAPERS" fyrir NordData
88 hefur borist skrifstofu
Skýrslutæknifélagsins og nú þegar
hafa margir félagsmenn fengið
eintak.
Ráðstefnan NordDATA 88 verður að
þessu sinni haldin i Helsingfors,
dagana 13. - 16. júni 1988.
Á hverju ári eru valin nokkur
erindi sem keppa um verðlaun.
Sérstök dómnefnd metur þau og
velur úr þrjú til fjögur sem best
þykja.
Tvisvar sinnum hefur íslendingur
fengið slika viðurkenningu. Páll
Jensson, forstöðumaður Reikni-
stofnunar Háskólans fékk verðlaun
á NordDATA 85 i Kaupmannahöfn,
þar sem hann skýrði frá fram-
leiðslustjórnunarkerfi fyrir
frystihús og Dr. Jörgen Pind,
deildarstjóri Orðabókar Háskólans
á NordDATA 86 i Stokkhólmi, fyrir
bókargerð á tölvuöld.
:all
FOR
PAPERS
13.-16. juni 1988
Helsingfors - Esbo
Finland
fyrirlestur um orða-
Það er þvi full ástæða til að hvetja íslendinga til að nota
þau tækifæri sem þessi langstærsta tölvuráðstefna á
Norðurlöndum gefur. Þetta er tilvalinn vettvangur til að
koma bví á framfæri. sem verið er að gera í tölvumálum hér
á landi.
Þeir sem ekki hafa fengið ofangreindan bækling en hefðu
áhuga á að kynna sér hann eru beðnir að hafa samband við
skrifstofu Skýrslutæknifélagins í síma 27577 hið fyrsta,
þar sem fyrstu upplýsingar um fyrirlestra þarf að senda
dagskrárnefnd NordDATA 88 fyrir 15. nóvember þ.m. -kþ.
7