Tölvumál - 01.11.1987, Side 21

Tölvumál - 01.11.1987, Side 21
auðskilið, hvað veldur þessu ósamkomulagi um val kerfanna tveggja. Jakob taldi ástæðurnar e.t.v. ekki sist pólitisk- ar, Bretar væru ófúsir til að vera samferða Þjóðverjum. Skiptingin er sem stendur þannig, að Amadeus liggur "suður og norður", það kerfi aðhyllast SAS, Lufthansa, Air France og Iberia. Galileo liggur þversum á Amadeus, nýtur hylli British Airways, KLM og Swissair. Enn sem komið er, er óráðið hvorum megin við lendum. En Amadeus-kerfið á skv. áætlun að geta komist i gagnið 1. júli næsta ár, Galileo-kerfið að likindrun ári siðar. Um kostnað íslands af þátttöku i öðru hvoru kerfinu er flest á huldu enn; Jakob gat fáu svarað fyrirspurnum um það atriði, en lauk máli sínu með orðum, sem fallið höfðu á einhverjum fundinum um val kerfa fyrir Evrópu: "If I don't join, I'm out of business, and if I join, I become bankrupt". 3. FYRIRHUGAÐAR BREYTINGAR Á TÖLVUMÁLUM SAMBANDSINS Ragnar Pálsson, sem jafnframt var ráðstefnustjóri, hélt fyrirlestur um þetta efni. Á siðastliðnu vori ákvað SÍS að taka tölvumál sín til gagngerrar endurskoðunar, og er nú svo komið, að ákveðið hefur verið að breyta tölvudeild fyrirtækisins á næsta róttækan hátt. Ragnar rakti fyrst, hvernig tölvudeild SÍS hefur hagað verkum sinum til þessa. Byggt hefur verið á stórtölvu, IBM 4341, auk nokkurra smærri; sú stórtölva hefur verið i notkun siðan 1981 og verið efld samfellt, svo að naumast verður á bætt. Notuð hafa verið stýrikerfin VM og VSE og allmörg mál til kerf isforritunar. Allt hefur þetta orðið til að skapa flókið umhverfi og kostnaðarsamt. Tölvudeild SÍS hefur þurft að hafa fjölda manns á föstum launum vegna stýrikerfa og kerfisforritunar, og við bætist, að erfiðar hefur sóst með timanum að finna staðlaðar lausnir, t.d. að þvi er varðar nýtingu á telex. Allt hefur þetta kostað SÍS miklar fjárfestingar, sem ekki hafa skilað sér sem skyldi að dómi notenda. IBM hefur þrýst á, að SÍS tæki upp MVS sem stýrikerfi; með þvi mundi að visu verða greiðari not af hugbúnaði þeim, sem i boði er, en þar mundi ekki siður blasa við ómæld vinna vegna tæknilegra atriða og auknar fjárfestingar, ef brugðið yrði á það ráð að kaupa nýja stórtölvu i stað hinnar gömlu. 21

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.