Tölvumál - 01.06.1988, Síða 6
Páll Jensson:
Skýrslutæknifélag íslands 20 ára
Aldur er afstætt hugtak. Þó 20 ár virðist ekki
hár aldur, er hann það, þegar upplýsingatæknin
á í hlut.
Það voru framsýnir menn, sem ákváðu að
stofna „félag þeirra sem nota gatspjaldavélartil
úrvinnslu gagna". í fyrstu lögum félagsins ertil-
gangurinn skilgreindur svo: „að stuðla að hag-
rænum vinnubrögðum við gagnavinnslu í hvers
konar rekstri og við tækni- og vísindastörf.
Þessum tilgangi hyggst félagið ná með því að
gangast fyrir sýningum, fyrirlestrahaldi,
umræðum, upplýsingamiðlun og námskeiðum,
eftir því sem efni standa til. Ennfremur gangast
fyrir samræmingu og stöðlun við vélræna
gagnavinnslu, og stuðla að útvegun tækja með
sem hagkvæmustum kjörum."
Fyrstu stjórn 51 skipuðu eftirtaldir menn: Hjör-
leifur Hjörleifsson, fjármálastjóri Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, formaður, Gunnlaugur
Björnsson, deildarstjóri SÍS, Jakob Sigurðsson,
deildarstjóri Sláturfélags Suðurlands, Svavar
Jóhannsson, bankafulltrúi Búnaðarbanka ís-
lands, Bjarni P. Jónasson, forstjóri SKÝRR,
Magnús Magnússon, prófessor, forst.maður
Reiknistofnunar Háskólans. Varamenn voru:
Sigurður Þórðarson, þá hjá Loftleiðum og Sig-
finnur Sigurðsson, hagfræðingur hjá Reykjavík-
urborg. Endurskoðendur vori Áki Pétursson,
deildarstjóri hjá Hagstofu íslands og Gunnlaugur
G. Björnson, deildarstjóri Útvegsbanka íslands.
Aðrir, sem unnu að undirbúningi félagsins
voru: Klemens Tryggvason, hagstofustjóri,
Helgi V. Jónsson, endurskoðandi, Sigurbjörn
Sigtryggsson, Landsbanka l'slands, Árni Bjarna-
son, Verzlunarbanka (slands og Vilhelm Ander-
sen, Mjólkursamsölunni.
Ég held það sé á engan hallað þó Hjörleifs Hjör-
leifssonar sé sérstaklega minnst hér á þessum
tímamótum. Hann var í raun faðir félagsins, því
hann átti frumkvæðið að undirbúningi þess.
Hjörleifur var fyrsti maðurinn, sem gerður var
að heiðursfélaga í Skýrslutæknifélaginu, en það
var á 10 ára afmæli félagsins 1978. Hann er nú
látinn.
Störf Skýrslutæknifélagsins hafa frá upphafi
6//////////// TÚLVUMftL
Páll Jensson, formaður Skýrslutæknifélags íslands
einkennst af mikilli framtíðarhyggju. Flest við-
fangsefni og umræðuefni félagsins hafa á einn
eða annan hátt miðað að því að sjá fyrir tækni-
þróunina og huga að framtíðinni. Skýrslutækni-
féiaginu fannst því vel við hæfi að minnast 20
ára afmælisins með því að fá ýmsa spámann-
lega vaxna menn til að gefa, með stuttum erind-
um, innsýn í framtíðina á sviði upplýsingatækni,
eins og þeir sjá hana.
I þessu blaði eru birt erindi framsögumanna á
spástefnu Sl 6. apríl s.l.