Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 40

Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 40
lags Reykjavíkur 1944. Bjarni var einn af stofn- endum Skýrslutæknifélagsins og formaður orðanefndar fyrstu 10 árin. Til gamans má nefna, að í fundargerð frá aðalfundi 1969 kemur fram, að þegar Bjarni gerði grein fyrir fyrsta ársverki nefndarinnar og lagði fram fyrsta tölvuorðalistann, þá „taldi hann starfinu ekki lokið og lagði til að nefndin héidi áfram störfum." Gunnlaugur G. Björnson er fæddur árið 1912. Hann varð stúdent frá MR 1931 og nam stærð- fræði við háskólann í Berlín 1931—34. Gunnlaug- ur vann fyrst hjá Landsbanka Islands 1935 —'42, en réðst þá til Útvegsbankans og gegndi þar m.a. stöðu deildarstjóra og skipulagsstjóra. Árið 1981, þegar Gunnlaugur fór á eftirlaun hjá Útvegsbankanum réðst hann til Reiknistofu bankanna, til starfa við forritun og kerfissetn- ingu.. Sennilega er það einsdæmi að sjötugur maður ráðist í vinnu sem kerfisfræðingur og for- ritari. Reyndar hafði Gunnlaugur þá lengi unnið við forritun, allt frá því að hann skipulagði gang gagnavinnsluvéla með þeirri tækni að klippa tinda af sérstökum hjólum með naglaskærum. Gunnlaugur er kunnur fyrir það hve fljótt og auðveidlega hann hefur tileinkað sér nýja tækni með sjálfnámi. Þessi hæfileiki virðist ekki hafa minnkað við aldurinn. Fyrir 2—3 árum var hann enn að vinna tæknileg afrek. Hann útbjó þá lyklaborð og leturgerðir fyrir Macintosh-tölvur og þýddi ýmis þekkt forrit, m.a. LOGO, Macw- rite, Macpaint o.fl. Hann lét sér ekki nægja að útbúa venjulegar leturgerðir fyrir makkann, heldur bætti þar við rúnum, höfðaletri og Hrappseyjarletri, sem mun vera fyrsta íslenska prentletrið. Gunnlaugur hefur gegnt fjölmörgum trúnað- arstörfum. Hann hefur m.a. verið formaður Sambands ísl. bankamanna, fyrsti formaður samstarfsnefndar um Reiknistofu bankanna og um skeið var hann formaður Verðlagsráðs sjá- varútvegsins. Gunnlaugur var einn af stofnfélögum Skýrslu- tæknifélagsins og fyrsti endurskoðandi félags- ins. Klemens Tryggvason erfæddur árið 191 1. Hann lauk hagfræðiprófi frá Hafnarháskóla árið 1940. Klemens var forstöðumaður hagfræðideildar Landsbanka íslands 1942—'51, er hann tók við starfi hagstofustjóra, sem hann gegndi í 33 ár eða til ársins 1984. '40/I//I/IIHIITÚL VUMÓL Á fyrstu árum sínum sem hagstofustjóri mót- aði Klemens mikilvægustu skrá landsins, þjóðskrána, og stjórnaði véltöku hennar. Ef hægt er að tala um höfund skráar, þá er Kle- mens höfundur þjóðskrár. Hann lét sér ávallt annt um hana og var m.a. mjög gætinn hvað varðaði aðgang að skránni. Klemens stjórnaði einnig vélvæðingu ýmissa hagskýrslna, en þess má geta hér að verslunarskýrslur Hagstofunn- ar voru fyrsta verkefnið, sem unnið var í gagna- vinnsluvélum hér á landi árið 1949. Klemens var formaður stjórnar SKÝRR frá stofnun þeirra 1952 til 1971 og gegndi þess vegna mikilvægu hlutverki þegar tölvutæknin hóf innreið sína hér á landi um miðjan sjöunda áratuginn. Klemens var einn af stofnendum Sl og fundar- stjóri var hann á öllum aðalfundum félagsins fyrstu 18 árin í sögu þess. Ottó A. Michelsen er fæddur árið 1920. Hann lærði viðgerðir á skrifstofuvélum í Þýskalandi og Danmörku og útskrifaðist sem skrifvélavirki árið 1946. Við heimkomu frá námi það ár stofn- aði hann fyrirtækið Skrifstofuvélar. Árið 1950 tók hann að sér umboð fyrir IBM hérlendis. Þeg- ar IBM á Islandi var stofnað árið 1967 varð Ottó fyrsti forstjóri þess, og gegndi hann því starfi til ársins 1982. Brautryðjendastörf Ottós í þágu skrifstofu- tækni og tölvuvæðingar hér á landi munu flest- um kunn. Hann átti m.a. frumkvæði að því að fá hingað til kynningar fyrstu tölvuna, IBM 1620, árið 1963, en ári síðar var slík vél keypt fyrir Háskólann. Hér verður ekki að fjölyrt frekar um störf Ottós, en látin fljóta með stutt saga, sem er dæmigerð um viðhorf Ottós til vinnu sinnar og þá áherslu sem hann hefur ávallt lagt á góða þjónustu: Þegar Skrifstofuvélar voru til húsa á Lauga- vegi 11 kom eitt sinn upp eldur. Ottó og starfs- menn hans breiddu þegar segl yfir vélar og tæki tii að hlífa þeim fyrir vatni og reyk. Þá hringir síminn. Ottó skreið strax undir seglið og svar- aði. Þar var stúlka hjá Útvegsbankanum að biðja um viðgerðarmann. Ottó svarar: „Því mið- ur stendur svolítið illa á hjá okkur í augnablikinu, það er að brenna, en við komum strax og við getum." Og viti menn: Viðgerðarmaður birtist í Útvegsbankanum síðar um daginn. Ottó hefur verið félagi í Skýrslutæknifélaginu frá upphafi og hefur alla tíð verið velunnari félagsins og sýnt því mikinn áhuga og tryggð.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.