Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 35

Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 35
Þorbjörn Broddason: FJölskyldan í upplýsingasamfélaginu Fjölskyldufestið er jafngamalt mannlegu sam- félagi og raunar eldra því óhætt er að fullyrða að fjölskyldan sé forrnennskt fyrirbæri. Um árþús- undir var fjölskyldan (og heimilið) meginvett- vangur tilverunnar í öllum þjóðfélögum heims. Hún var grunneining efnahagslífsins og þar fór nánast öll verðmætasköpun fram. Þessi sann- indi endurspegluðust í stjórnarfari og trúar- brögðum og menningararfinum að öðru leyti, m.a. í ríkri ættarhyggju. Safnarar, veiðimenn, hirðingjar, bændur: Alls staðar var fjölskyldan miðdepill starfsins og tilverunnar allrar. Þannig gekk þetta fyrir sig árþúsundum sam- an þar til iðnbyltingin skapaði skyndilega kring- umstæður sem næstum urðu fjölskyldunni ofviða. Iðnbyltingin hafði í för með sér nýja teg- und verkaskiptingar og, sem mestu máli skiptir í þessu sambandi, hún leiddi til þess að heimilið hætti að vera vettvangur framleiðslunnar og var þá brostin meginforsenda þess að þar væri áfram miðstöð tilverunnar. Fjölskyldan, sem hafði staðið af sér allar fyrri sviptingar sögunn- ar, var nú ekki lengur samgróin efnahagslífi og menningu en varð að hálfgerðum vandræðagrip sem engin leið var þó að vera án. Viðbrögðin við þessari þróun hafa að vonum verið dálítið fálmkennd á köflum. Einn norrænn vandamálasérfræðingur hefur t.d. komist að þeirri meitluðu niðurstöðu að sundrungin sé hið eðlilega ástand fjölskyldunnar. Þessi speki felur að mínu mati í sér þversögn sem væri brosleg í fáránleika sínum ef ekki væri á ferðinni stór- alvarlegt mál. Runnið hefur upp Ijós fyrir stjórnmálamönn- um, bæði til vinstri og hægri, um kreppu fjöl- skyldunnar. Þeir hafa hins vegar verið sein- heppnir í lausnum sínum, hvorir á sinn hátt, því að í báðum fylkingum hafa menn lent í gíslingu sögulegra kringumstæðna. Þegar öll kurl eru komin til grafar reynast stjórnmálamennirnir oftar vera leiksoppar sögunnar en hreyfiafl hennar. Með grófri einföldun má segja að hinir hægrisinnuðu eigi í erfiðleikum með að horfast í augu við að fjölskyldan og heimilið í hefðbundn- Þorbjörn Broddason er prófessor við félagsvísinda- deild Háskóla íslands. Hann hefur í ræðum og ritum fjallað um áhrif tölvutækninnar á þjóðlífíð og sérstak- lega á heimilin og hlutverk þess í framtíðinni. Hafa kenningar Þorbjörns vakið athygli m. a. á Norðurlönd- um. um skilningi sé orðið að innantómri skurn í iðn- ríkjum okkar daga. Með því að ríghalda í úrelta fjölskylduímynd í einhvers konar nostalgískri blindu stofna þeir framtíð fjölskyldunnar beinlín- is í voða. Með jafnmikilli einföldun má segja að vinstrimenn séu á góðri leið með að útrýma fjöl- skyldunni í ákafa sínum við að létta af henni sem flestum verkefnum; þeir átta sig ekki á því að velferðin svokallaða ber í sér frækorn and- hverfu sinnar. Nú er önnur bylting dunin yfir, að margra mati engu ómerkari en iðnbyltingin: Upplýsingabylt- ingin; ég er þeirrar skoðunar að hún verði ekki síður afdrifarík fyrir fjölskyldufestið og þar með alla tilveru okkar en iðnbyltingin; rétt eins og eftirköst hennar skóku undirstöður fjölskyld- unnar mun fjöiskyldan og heimilið á ný leidd til öndvegis á upplýsinga- og boðskiptaöld. Heimil- ið verður á ný miðstöð tilverunnar. TÚL VUMÚL//////////// 35

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.