Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 37
Stefán Ingólfsson:
„Ég á mérdraum"
„Ég á mér draum." I þessari setningu endur-
speglast óskir um bjartari framtíð þó að engin
vissa sé fyrir því að næstu ár beri í skauti sér
„betri tíð með blóm í haga." Hún á því vel við þeg-
ar fjallað er um opinberar upplýsingar og hinn
almenna borgara í landinu.
Ég á mér draum um opið upplýsingaþjóðfélag.
Að opinberir aðilar noti nútíma upplýsingatækni
í þágu almennings í þessu landi.
Tölvukerf i ríkisins eru í dag einkum notuð til að
leggja á opinber gjöld og innheimta þau. Tölvu-
kerfin miðast fyrst og fremst við þarfir stjórn-
kerfisins sjálfs en veita almenningi lágmarks-
þjónustu. Þrátt fyrir aukna tölvuvæðingu hafa
snúningar okkar við að útvega vottorð og kvitt-
anir til að skila á opinberar skrifstofur ekki
minnkað.
Ég á mér þann draum að upplýsingakerfum
hins opinbera verði breytt: Að upplýsingar sem
fólk þarf að skila á vottorðum eða öðrum skjöl-
um verði teknar af samtengdum tölvuskrám:
Vottorð um fjölskylduhagi, lífeyrissjóðsréttindi,
opinber möt og veðbókarvottorð má fella niður
og spara þúsund klukkustunda bið í afgreiðslu-
sölum. Að stjórnkerfi ríkisins verði breytt og
almenningur geti sótt mál sín í færri afgreiðslu-
sali.
Upplýsingar um hinn almenna borgara er víða
að finna í opinberum tölvuskrám. Þær eru þó
ekki dregnar saman og sendar honum til þess að
hann geti sannreynt þær. Fólk á ekki kost á því
að fá afhent afrit af upplýsingum sem um það
eru skráðar í opinbera kerfinu.
Ég á mér þann draum að opinber tölvukerfi
verði hönnuð með það fyrir augum að hinn
almenni borgari eigi greiðan aðgang að öllum
þeim upplýsingum sem um hann eru skráðar.
Opinber upplýsingasöfn eru að óverulegu leiti
tengd saman. Sömu upplýsingar er að finna í
mörgum tölvuskrám. ( opinbera kerfinu er ekki
tvíverknaður. UPPLÝSINGAR SEM SKIPTA
MÁLI ERU OFTAST SKRÁÐAR Á FJÓRUM
STÖÐUM. Hin opinberu skráningarkerfi fast-
eigna eru dæmi um það. í landinu eru tvö óháð
matskerfi sem reikna út svipaðar upplýsingar.
Stefán Ingólfsson er verkfræðingur og ritstjóri
TÖLVUMÁLA. Hann hefur fjallað um upplýsinga-
vinnslu hins opinbera og hvatt til umræðu um hana.
Stefán hefur ritað fjölda greina í TÖLVUMÁL og dag-
blöð um tölvuvæðingu og upplýsingamál almennt.
Hann hefur verið formaður DECUS og er í stjórn
Skýrslutæknifélagsins.
Fjórir aðilar halda fasteignaskrár. Til þess að sjá
til þess að rétt sé skráð þarf að fara á marga
staði með sömu upplýsingar.
Ég á mér þann draum að tölvuvædd upplýs-
ingatækni verði notuð til að einfalda opinbera
skráningu og úrvinnslu upplýsinga. Að upplýs-
ingum verði miðlað frá einni tölvuskrá til annarr-
ar. Almenningur geti gengið að því vísu að þegar
upplýsingar eru rétt skráðar á einum stað gildi
það sama annars staðar. Að margvinnsla upp-
lýsinga verði aflögð. Á þann hátt verði sparaðar
hundruð milljóna af almannafé á ári.
Opinbera stjórnkerfið er óhemju flókið. Mikil-
vægir málaflokkar falla ósjaldan undir tvo eða
fleiri aðila í kerfinu. Samræming þeirra strandar
oft á togstreitu innan kerfisins. Með notkun
tölvuvæddrar upplýsingatækni má einfalda boð-
leiðir og skera upp kerfið. Undanfarin ár hefur
miðstýring aukist í stjórnun, starfsmannahaldi,
TÖL VUMfiL//////////// 37