Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 15
Sigurjón Pétursson: Framtíðin er biört Hvers vegna er framtíðin björt? Jú, framtíðin er björt vegna þess að við búum í besta landi í heimi og erum svo heppin að starfa á besta sviði sem til er í íslensku atvinnulífi, nefnilega upplýsinga- tæknisviðinu. Ég fullyrði að við búum í besta landi í heimi. Kemur þar geysilega margt til. í fáum orðum sagt eigum við hér gott mannlíf, fallegt land, gjöfular auðlindir og hreint loft. Við sem störfum á sviði upplýsingatækninnar störfum á besta sviði sem til er í íslensku atvinnulífi. Geysilegir möguleikar eru fyrir hvern og einn til að ná langt á sviði upplýsingatækninn- ar. Það einkennir t.d. þetta svið að menntun er alls ekki forsenda til að ná langt. Menn geta orð- ið sérfræðingar og ráðið yfir þekkingu sem aðrir hafa ekki á sviði upplýsingatækninnar með því að kynna sér þætti sem aðrir hafa ekki kynnt sér. Vegna hinnar öru þróunar á upplýsinga- tæknisviðinu opnast möguieikar sem þessir nánast daglega. Líkja má þessu ástandi við land- nám Norður-Ameríku. Þar voru möguleikar miklir, allir áttu tækifæri. Breytingar- og byltingartímar eru tímar tæki- færanna. Þá opnast nýjar leiðir, öll viðhorf breytast og það sem var heilagt í fortíðinni er það ekki lengur. Við lifum á tímum geysilegra breytinga og tækni- og töivubyltingin er í algleymingi. Sagt hefur verið að við eigum eftir að upplifa jafnmiklar breytingar á næstu 20 árum eins og á síðustu 80 árum. Þetta eru stór orð. Félagið okkar er 20 ára og á þeimtíma hefur átt sér stað byiting á sviði upplýsingavinnslu á íslandi. Það sem er merkilegt við þessa byltingu er hversu hljóðlát hún hefur verið. Við höfum átt því láni að fagna að eiga mikinn mannauð. Við (slendingar erum mjög vel menntuð þjóð borið saman við aðrar þjóðir og þess vegna hefur íslensku vinnuafli gengið mjög vel að tileinka sér hina nýju tækni. Viðhorf okkar (slendinga almennt svo og afstaða verkalýðshreyfingar- innar hafa einnig verið mjög jákvæð. Tölvan er ekki aðeins orðin sjálfsagður hlutur inn á hverju heimili heldur situr hún þar í hásæti. I þættinum 19:19 á annan í páskum sáum við í löngu viðtali við forsetann okkar einmitt þetta tvennt. Það Sigurjón Pétursson er aðstoðarframkvæmdarstjóri SJÓVÁ HF. og jafnframt yfirmaður tölvudeildar fyrir- tækisins. Hann var formaður Skýrslutækniféiagsins 1983—1987. Hann hefur íræðu og riti fjallað um notkun tölva frá sjónarhóli notenda. var verið að sýna húsakynni á Bessastöðum eftir hinar miklu og smekklegu breytingar sem framkvæmdar hafa verið þar og í merkilegasta herberginu, Thomsenstofu sat Machintosh- tölva forsetans í hásæti. Þar sem Grímur Thomsen, Jónas Hallgrímsson, Fjölnismenn og fleiri störfuðu hér áður, starfar nú Vigdís Finn- bogadóttir við tölvuna sína og talar með sömu reisn, hlýju og virðingu um hana eins og allt ann- að á Bessastöðum. Ég sagði áðan að við ættum eftir að sjá jafn miklar breytingar á næstu 20 árum og á síðustu 80 árum. Ég trúi því að hin nýja öld sé rétt að hefjast. Að við höfum aðeins rétt snert yfirborð möguleika hinnar nýju tækni og framfara. Við íslendingar erum að mörgu leiti mjög vel búnir undir framtíðina. En til að standast öðrum þjóðum snúning í samkeppni, verður við að ieggja fram mikla vinnu og vera tilbúin að aðlaga okkur að ótal breytingum. Skýrslutæknifélagið hefur átt drjúgan þátt í því að búa okkur undir þá framtíð sem bíður okkar. Það voru framsýnir menn sem komu saman fyrir 20 árum og stofnuðu félagið okkar og við eigum þeim mikið að þakka. TÚL VUMRL////////////15

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.