Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 39
Heiðursfélagar
Frá afhendingu heiðursskjala á 20 ára afmælishátíð Skýrslutæknifélagsins 6. apríl 1988. F. v. Páll Jensson, for-
maður Skýrslutæknifélagsins, Bjarni P. Jónasson, Gunnlaugur G. Björnson, Klemens Tryggvason og Ottó A.
Michelsen.
Á tuttugu ára afmæli Skýrslutæknifélagsins
voru eftirtaldir menn gerðir að heiðursfélögum,
fyrir brautryðjendastörf í þágu félagsins og upp-
lýsingatækni á íslandi. Páll Jensson, formaður
Skýrslutæknifélagsins afhenti heiðurskjölin við
hátíðlega athöfn á afmælishátíð félagsins, 6.
apríl s.l.
Bjarni P. Jónasson er fæddur árið 1920. Hann
lauk verslunarskólaprófi árið 1938. Á stríðsár-
unum stundaði Bjarni ýmis störf, en 1947 varð
hann aðalbókari Olíufélagsins og 1952 skrif-
stofustjóri bókhaldsdeildar SÍS. Árið 1960 varð
hann fyrsti forstjóri SKÝRR og gegndi því starfi
til ársins 1976, er hann tók við núverandi starfi,
sem ráðgjafi stjórnar SKÝRR.
I forstjóratíð Bjarna tóku SKÝRR stakka-
skiptum frá því að vera 7 manna fyrirtæki með
gagnavinnsluvélar, yfir í nútímalega tölvumið-
stöð með meira en tífalt fleiri starfsmönnum.
Bjarni var aðal hvatamaður þess að fá fyrstu
tölvu SKÝRR árið 1964, ÍBM 1401 en hún hafði 4
kb vinnsluminni. Byggja þurfti sérstaklega
útbúið húsnæði fyrir hana, fyrsta vélasalinn hér
á landi. Hver ný kynslóð tölva rak aðra, IBM 360
og 370 og þegar Bjarni hætti sem forstjóri, ráku
SKÝRR tölvu með 200-falt stærra vinnsluminni
en þegar hann byrjaði. Bjarni hefur setið í svo-
kallaðri Tölvunefnd frá upphafi, og á ýmsan ann-
an hátt, en hér hefur verið nefnt, komið við sögu
upplýsingatækninnar hér á landi. Hann er skák-
maður góður. Hann varð skákmeistari Taflfé-
TÚLVUMéL//////////// 39