Tölvumál - 01.06.1988, Blaðsíða 31
SigríðurR. Rsgrímsdóttir:
Konur og tækni
Ekki verður annað sagt en að fulit jafnrétti ríki á
íslandi milli kynja, konur og karlar hafa jafnan
lagalegan rétt, kosningarétt og kjörgengi,
eignarétt og málfrelsi, ferðafrelsi og athafna-
frelsi og frelsi til þess að velja sér nám og störf,
velja sér maka og hafa forræði barna. Hvernig
stendur þá á því að efni eins og konur og tækni
skuli vera til umfjöllunar á ráðstefnu fremur en
karlar og tækni? Þetta sýnir á skýran hátt að
við lítum öðrum augum á hlutverk kvenna en
karla í samfélaginu. Kynin búi við ójöfn viðhorf
þrátt fyrir jafnan rétt. Þátttaka kvenna í tækni-
störfum hefur fram til þessa verið afar lítil hvort
sem átt er við tæknistörf sem krefjast iðnrétt-
inda eða menntunar á háskólastigi. Svar við
þeirri spurningu hvers vegna konur velji siður
tæknistörf en karlar er að finna hjá konunum
sjálfum. Við nánari athugum kem ég ekki auga á
nokkur gild rök fyrir því að konur velji önnur
störf en karlar eða breyti á annan hátt í lífinu en
karlar nema eigin óskir þeirra, vilji og hæfileikar
bjóði þeim það. Konur í tæknigreinum hér á landi
hafa flestar komið til starfa síðustu tíu árin eða
svo og hafa bæst í hópinn ein og ein á ári í hverri
grein. Á ráðstefnunni Konur og tækni var greint
frá skoðanakönnun meðal kvenna í verk- og
tæknifræðingastétt. Flestar telja sig ánægðar í
starfi og fást oft við áhugaverð verkefni en voru
síður ánægðar með stjórnunarhætti, óvistlegt
umhverfi og það að vera eina konan í samstarfs-
hópnum. Aðeins B°/o félaga í verkfræðinga-
félaginu nú eru konur en um 14% skráðra
nemenda í verkfræðigreinum við Hl nú eru
konur. Á næstu fjórum árum mun konum, verk-
fræðingum á íslandi, fjölga um 50%. Ætla má að
eftir 25 ár verði 14% íslenskra verkfræðinga
konur en hlutfallslega mun fleiri í yngri
árgöngunum.
Nokkuð örari fjölgun kvenna mun væntanlega
verða á meðal kerfis- og hugbúnaðarsérfræð-
inga og mun hlutfallstalan verða mun hærri fyrir
konur í þeim greinum þar sem um yngri starf-
stéttir er að ræða. í Skýrslutæknifélagi íslands
eru nú aðeins um 10% félagsmanna konur. I
Sigríður Á. Ásgrímsdóttir er verkfræðingur. Hún er
önnur konan sem lauk verkfræðinámi á íslandi. Sigríð-
ur rekur fyrirtækið TÖLVULAUSN HF., en var áður
forstöðumaður tölvudeildar RARIK. Sigríður var með-
al framsögumanna á nýlegri ráðstefnu, sem bar sama
heiti og eríndi hennar.
námi í tölvunarfræði við HÍ eru konur nú 20% og
í Tölvuskóla VÍ eru þær 54% nemenda. Allt
bendir því til þess að á næstu árum verði nokkur
hundruð konur komnar með sérfræðikunnáttu
á sviði upplýsingatækni. Sú félagslega einangr-
un sem konur í tæknigreinum hafa búið við verð-
ur því úr sögunni og mun ekki valda því að konur
fælist frá tæknistörfum af félagslegum ástæð-
um.
Til þess að reyna að svara því hvort sérfræði-
störf á sviði upplýsingatækni muni geta fallið
konum vel í geð er vert að gera grein fyrir því
hvers eðlis þau störf eru sem unnin verða á sviði
upplýsingatækninnar í framtíðinni? Ég hef flokk-
ar störfin niður í átta aðalflokka:
1. Fumrannsóknir.
2. Hönnun og frumþróun.
TÚL VUMÚL//////////// 31