Tölvumál - 01.06.1988, Page 17
vinnslu, ekki síst þá tegund, sem kölluð er „desk-
top publising" á ensku og sameinar öfluga rit- og
myndvinnslu. Sumar vinnustöðvar eru gæddar
talmáli nú þegar, og í framtíðinni verður ekki ein-
ungis unnt hlusta á þær, heldur munum við líka
tala við þær. Og það sem meira er, þær munu
skilja í okkur rausið og geta sent það til annarra
stöðva vinnukerfisins eða jafnvel til fjarlægra
landa, þar sem „útlenskar" stöðvar skila boð-
skapnum á framandi tungumálum.
Niðurstaða þessara hugleiðinga er sú, að
vinnustöðvar framtíðarinnar mynda samofið
vinnukerfi, sem veitir notendum vingjarnlegt og
öflugt vinnuumhverfi, óháð vélategundum og
stýrikerfum. Gagnsemi vinnukerfisins er ekki
síst fólgið í aðgangi að miðlægum upplýsingum
ogjaðartækjum.
TÖLVUMÚL////////////17