Tölvumál - 01.06.1988, Page 20
Þorvarður Jónsson:
Fjarskipti framtíðarinnar
Aukin notkun stafrænnar tækni einkenna fjar-
skipti framtíðarinnar. Nú þegar eru fjórðungur
sjálfvirkra símstöðva hér stafrænar og stafræn
sambönd á Ijósleiðarastrengjum (glerfíber) og á
örbylgjukerfi aukast ört og brátt munu stafræn
sambönd um gervitungl verða sett upp.
Stafrænar símstöðvar bjóða notendum upp á
ýmsar nýjungar, sem notandinn getur sjálfur
kóðað í stöðina eins og vakningu, skammval,
símtalsflutning, langlínulæsingu, endurval, sjálf-
virka hringingu í fyrirfram ákveðið númer þegar
lyft er af, símtal bíður, þriggja manna tal, sím-
talavíxl o.fl.
Þegar búið verður að leggja Ijósleiðarastrengi
víðs vegar um landið bjóða þeir upp á háhraða
gagnaflutning, sjónvarpsflutning auk talvið-
skipta. Þá verður hægt að bjóða upp á sjón-
varpsráðstefnur með þátttakendum víðs vegar
um landið auk sjónvarpsfjarkennslu. Einnig býð-
ur þetta upp á hágæða hljóðrásir og sjónvarps-
rásir, stereohljóð með sjónvarpi, aukinn fjölda
hljóðrása í sjónvarpi o.fl.
Þjónusta almenna gagnaflutningsnetsins
mun aukast með tilkomu almenns tölvupóst-
hólfakerfis með MHS (Message Handling Sys-
tem eða svokallað X.400 kerfi), upplýsingaveitu
(videotex), og aðgangi að fjölda íslenskra og
erlendra upplýsingabanka (gagnasöfn).
í framtíðinni verður einnig hægt að nota far-
símakerfið til gagnaflutnings.
Þróun stafrænu fjarskiptakerfanna stefnir á
fjölþjónustukerfi ISDN (Integrated Services
Digital Network) fyrir bæði tal og ýmsar tegund-
ir gagnaflugnings. Þessi þróun er að nokkru leyti
komin fram í nýjustu stafrænu einkasímstöðv-
unum, sem jöfnum höndum geta þjónað sem
símakerfi og skiptistöðvar fyrir gagnaflutning
innan fyrirtækisins og við hið almenna
fjarskiptakerfi. Notkun nærneta (LAN) mun
aukast og hægt verður að tengja þau bæði við
stafrænu einkasímstöðvarnar og hið almenna
fjarskiptakerfi.
Alls konar þráðlaus þjónusta mun aukast og
má þar nefna boðþeraþjónustu (pager) sem ná
mun til alls landsins. Hægt verður að senda
20//////////// TÖL VUMÖL
Þorvarður Jónsson er yfirverkfræðingur Pósts og
síma. Hann hefur lengi haft áhuga á tölvuþróuninni og
fylgst náið með henni. Þorvarður er manna fróðastur
um áhrif tölvutækni á fjarskipti og þróun tölvuneta.
Þorvarður stjórnaði uppsetningu X.25 netsins á ís-
landi.
skilaboð með tölum til móttökutækjanna og til
dýrari móttökutækjanna með bókstöfum og
tölum.
Staðsetningarkerfi munu batna og tækín
verða léttari og ódýrari.
I þessari upptalningu hefur eingöngu verið tal-
ið upp sumt af því sem nú þegar er fyrirsjáan-
legt, en miklu erfiðara er að spá um það, sem í
dag er óþekkt.