Tölvumál - 01.06.1988, Page 27
bylting sem hófst með tilkomu Macintosh töiv-
anna, muni hafa veruleg og varanleg áhrif.
Og loks er það ástkæra ylhýra málið. Þetta
aukna samstarf milli manns og tækni mun vega
að íslenskri tungu nema vel sé að gætt. Mikið
hefur verið gert til að íslenska tækniorð, og vek-
ur það undrun, aðdáun og jafnvel öfund flestra
útlendinga. En það þarf að gera meira en að
íslenska útlendu tækniorðin, gervigreindarforrit
þurfa að ráða við miklu meira en orð ein og sér.
Þau þurfa einnig að hafa vald á íslenskri mál-
fræði og setningarfræði, svo eitthvað sé nefnt.
Útlend aðkeypt forrit munu aldrei ná slíkum tök-
um á tungunni okkar. Það er aðeins á okkar
færi. En því miður hefur allt of lítið verið gert á
þessu sviði enn sem komið er.
Ef við lítum til framtíðar, er lítili vafi á því, að
við íslendingar munum fylgjast vel með tækn-
inni. Reynslan hefur sýnt, að við erum fljót og
iagin við að tileinka okkur nýja tækni. Spurningin
er miklu frekar hvort við höfum nógu marga
Fjölnismenn til að tryggja það, að á skrifstofu
framtíðarinnar verði íslenska en ekki ísl-enska
ríkjandi.
1 Information Edge, N. Dean Meyer og Mary E. Boone,
McGraw-Hill Book Company, 1987.
TÚL VUMÚL//////////// 27