Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Page 28

Tölvumál - 01.06.1988, Page 28
Jakob Sigurðsson: Framtíðarhorfur í rekstri tölvudeilda Á s.l. hausti hélt Skýrslutæknifélagið ráðstefnu þar sem rætt var um breytt viðhorf í rekstri tölvudeilda. Efnið var rætt frá nokkrum afmörkuðum sjónarmiðum. Það sem hérerfjall- að um er nokkurs konar viðauki við það, sem þar kom fram. Öllum sem eru í námunda við tölvu- deildir er Ijóst hversu mjög reksturinn hefur breyst á síðustu árum. Með tilkomu einmenningstölvunnar, töflu- reikna og nú síðast nettenginga, hefur skapast verulega breytt umhverfi. Enginn skyldi halda, að þegar komist hefur verið fyrir þá barnasjúk- dóma sem í dag eru að angra okkur, sé komið að einhverjum endapunkti. Við munum nú í næstu framtíð sjá nýjar gerðir vélbúnaðar koma á markaðinn sem munu marka tímamót, og stað- festa að sá tími er senn liðinn að hugbúnaður sé hannaður fyrir sérstakar gerðir vélbúnaðar. Umræðan um offjárfestingu í tölvubúnaði verður æ almennari. Mönnum er Ijóst, að vand- aður hugbúnaður kostar mikla peninga, og ekki sé réttlætanlegt að fjárfesta í honum nema að hann gangi á ólíkar gerðir vélbúnaðar. Þetta leiðir til þess að framleiðendur verða að bjóða uppá stjórnkerfi, sem eru ekki bundin ákveðinni vélagerð. Þetta er þegar farið að gerast með Unix og stjórnkerfum einmenningstölvanna. Því verður ekki lengur talað um IBM samhæfðar vélar, heldur MS-DOS, OS/2 eða Unix samhæfð- ar, eða hvað svo sem stjórnkerfin verða kölluð. I kjölfar þessa munu menn í miklu ríkara mæli, en nú tíðkast, fara að nota staðlaðan hugbúnað, við lausn verkefna sinna. Sá vélbúnaður, sem á næstu árum verður ráð- andi verður svo öflugur að miklu meiri áherslu verður að leggja áfullkominn hugbúnað, en nú er gert. Því miður verður að viðurkenna að á sviði hugbúnaðar erum við ákaflega skammt á veg komnir. Sífellt minni tíma tölvudeilda verður varið í kerfissetningu og forritun, en því meiri tíma í að velja staðlaðan hugbúnað og að þjálfa notendur í notkun þeirra. Við munum í vaxandi mæli aðlaga vinnubrögð okkar að fullkomnum hug- 28//////////// TÚL VUMftL Jakob Sigurðsson er forstöðumaður tölvudeildar Flug- leiða hf. Hann hefur langa reynslu í kerfisgerð, tölvu- vinnslu og rekstri tölvudeilda. Jakob var einn afstofn- endum Skýrslutæknifélagsins árið 1968. búnaði, í stað þess að aðlaga hugbúnaðinn að okkar vinnubrögðum. Þegar menn þykjast sjá hvert stefnir, hlýtur að koma í hugann hvort ekki sé mögulegt að koma á fót einhverjum staðli eða siðareglum, í framleiðslu hugbúnaðar. Til að byrja með yrðu það aðeins leiðbeiningar er með tímanum þróuð- ust í staðal eða siðareglur, sem allir er vilja markaðsetja sinn hugbúnað, skyldu fylgja. Margir eru í dag að bauka við sömu verkefnin, þar sem enginn hefur þá fjármuni sem þarf til framleiðslu hugbúnaðar í þeim gæðaflokki sem er krafist. Hugþúnaður verður að vera óháður vélagerðum. Ef gerð hans fylgdi ákveðnum reglum, væri fljótlega kominn vísir að hugbúnað- armiðstöð, sem hefði á boðstólum vandaðan hugbúnað frá hinum ýmsu framleiðendum. Þar með gætu skapast forsendur fyrir því að íslenskur hugbúnaður stæðist samkeppni við innflutta hugbúnaðarpakka, en ef við höldum

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.