Tölvumál - 01.06.1988, Side 30
Bergur Jónsson:
Upplýsingatækni ag bankastarfsemi
Hlutverk bankastofnana hafa breyst og munu
halda áfram að breytast meðan tækniþróun
gerir þeim kleift að þjóna viðskiptavinum betur
en áður.
Undanfarinn áratug hefur tæknin verið notuð
til að fullkomna greiðslumiðlun milli viðskipta-
vina og mun sú þróun halda áfram. Greiðslumiðl-
un hérlendis annast Reiknistofa bankanna.
Undanfarinn áratug hefur hún auk þess verið
eins konar tölvudeild bakanna, en ég tel að við
breyttar aðstæður muni það breytast og sjást
þess merki nú þegar. Hins vegar mun
almenningur fljótlega verða var við aukna virkni
hennar til greiðslumiðlunar.
Hraðbankar hafa verið hérlendis frá því árið
1985 og átt litlum vinsældum að fagna og stafar
það af mjög mikilli ávísananotkun íslendinga. í
sumum löndum gegna þeir veigamiklu hlutverki.
Svokölluð „home banking" er mikið milli tann-
anna á fólki og tel ég að hér sé dæmi um tækni
sem er að leita að markaði. Almenningur mun
ekki að svo komnu máli nýta sér þessa tækni.
Hins vegar munu stærri viðskiptavinir bank-
anna verða reiðubúnir að borga fyrir þessa þjón-
ustu.
Spáð er að notkun bankabóka muni því sem
næst hverfa á næstu 10 árum og í staðinn komi
reikningar, sem byggjast á innleggs- og úttekt-
arkvittunum. Þá er og spáð að notkun ávísana
muni stórlega minnka. Þessi spá byggir að sjálf-
sögðu á því að eitthvað komi í staðinn.
Ein tækninýjung hefur rutt sér víða rúms er-
lendis. Það er svokölluð EFTPOS tækni, sem er
skammstöfun á „Electronic funds transfer at
the point af sale". Tækjabúnaður er tengdur við
afgreiðslukassa verslana og þjónustufyrir-
tækja, og viðskiptavinur borgar á þann hátt að
setja plastkort sitt í tækið og er fjárhæð við-
skiptanna færð af reikningi viðskiptavinarins inn
á reikning verslunarinnar.
Það ætti að vera hagur banka, greiðslukorta-
fyrirtækja og verslana að nota þessa tækni.
Hins vegar er ekki sjálfgefið að það sé hagur við-
skiptavinanna eða að þeir taki vel á móti henni.
30//////////// TÚLVUMPL
Bergur Jónsson er tölvunarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs Verziunarbanka íslands.
Hann veitti áður forstöðu tölvudeild Landsvirkjunar.
Bergur hefur setið í stjórn Skýrslutæknifélagsins og
verið formaður DECUS (Félag DEC tölvunotenda) og á
ýmsan annan hátt unnið að þróun tölvumála hér á
landi.
Þessi þjónusta þyrfti að vera rekin sameiginlega
af bönkum, greiðslukortafyrirtækjum og e.t.v.
fleirum. Tæknin er til staðar en áður en hún er
tekin í notkun þarf að huga að ýmsum lagaleg-
um hliðum og hver skuli borga fyrir þjónustuna.
Tækninýjungar hafa þegar haft mikil áhrif á
bankastarfsemi. l' lokin má hafa í huga klausu úr
erlendri skýrslu um bankastarfsemi á komandi
áratug.
„Þeir bankar munu ná skammtímaárangri,
sem nota tæknina á sem áhrifaríkastan hátt,
vita hvers tæknin er megnug og hvernig hægt er
að gera hana aðlaðandi. Sé til lengri tíma litið
munu þeir standa uppúr sem meta rétt hag-
kvæmni tæknilegra fjárfestinga. Það verða þeir
sem feta hinn gullna meðalveg samvinnu og
samkeppni og nýta tæknina bæði til að þjóna
eigin framleiðslu og þörfum markaðarins".