Tölvumál


Tölvumál - 01.06.1988, Síða 33

Tölvumál - 01.06.1988, Síða 33
Jónas Kristjánsson: Tölvan á borði blaðamanns Tölvan sem ég kýs mér í nánustu framtíð, beitir hugbúnaði, sem er eins konar framþróun frá því, er ég nota núna í FocalPoint útfærslunni af kerf- isforritinu HyperCard, væntanlega fijótlega í samfloti við MultiFinder. Tölvan verður hin full- komna einkaritarahirð mín. Tölvan á að sýna mér að morgni dags minnis- atriðin, sem hún hefur fært milli daga, vikna, mánaða eða ára, allt eftir því, sem við á hverju sinni. Þessi minnisatriði snertafundi, fundaefni, skrif mín og annarra í blaðið, bréflegt og munn- legt samband við fólk úti í bæ og ótalmargt annað, svo sem nýtt verð á 6 vetra tölturum, sem eru að fara í sölu. Tölvunni ber að rita minnisatriði fyrir hvern hinna sjö funda, sem ég sit í fyrirtækinu á degi hverjum. Hún skal tengja ákveðin fundarefni á ýmsa vegu í kross, án þess að ég þurfi að muna eða hafa vit á að segja henni að gera það. Ég vil geta bent tölvunni á nokkur nöfn manna og fyrirtækja, sem hún á að hringja í, meðan ég er að koma mér fyrir við skrifborðið. Ég vil geta bent henni á að finna, í innlendum og erlendum upplýsingabönkum og í Reuter-efni dagsins, án þess að kaffæra mig í texta, nákvæmlega þær staðreyndir, sem mig vantar, og alls ekki aðrar. Áður er tölvan búin að opna nokkur forrit handa mér, eitt til að skrifa grein, annað til að búa til graf eða kort, hið þriðja til umbrots efnis í síðu, hið fjórða til bréfaskrifta, hið fimmta til ýmissa leiðréttinga á notkun íslenskrar tungu, hið sjötta til fróðleiks um kostnað ýmissa deilda ritstjórnar, hið sjöunda um slæma stöðu ein- stakra efnisþátta í tímaflæði næsta tölublaðs DV, hið áttunda til staðfestingar á réttri umgengni minni við staðreyndir mála, sem ég fjalla um, og svo hið níunda til að tefla við mig fimm mínútna skák milli símtala. Ég vil geta dansað tafarlaust fram og aftur milli allra þessara athafna, án tímaeyðslu í upp- flettingar í handbókum og ásláttar á lyklaborð, án minnis á stafarunur í tölvuskipunum og án minnsta skilnings mín á tölvum eða áhuga á hugsunarhætti þeirra. Ég vil þar á ofan geta lag- að forritin að þörfum mínum án þess að kunna Jónas Kristjánsson er rítstjóri DV, Dagblaðið — Vísir. Jónas hefur sýnt upplýsingatækninni mikinn áhuga. Hann er áreiðanlega fyrsti ritsjóri í heiminum, sem fjallar um UIMIX, MAC og DOS í leiðara almenns dagbiaðs. Jónas er þekktur fyrir að setja skoðanir sín- ar fram á þann hátt að eftir þeim sé tekið. forritun, eins og ég get nú þegar í HyperCard. Ég ætia ekki að rjúfa starftaktinn með því að hlaupa í tölvuritningu fimm sinnum á dag og í tölvuklerk tvisvar í viku til að ná sambandi við tölvuguð. Ég hyggst ekki þurfa að taka eftir, að tölvan sé yfirleitt til. Tölvan mun þjóna mér, en ég ekki henni. Dagblöð eru enn bundin í viðjar stórra og sér- hannaðra tölvukerfa, sem fullnægja fáum þörf- um þeirra sómasamlega, öðrum en hinni hreinu færibandavinnu, sem felst í að koma texta frá lyklaborði yfir í frágengnar dagblaðasíður. Framleiðendur slíkra kerfa hafa tiltölulega fáa viðskiptavini og eru ekki samkeppnishæfir í fjöl- breyttum hugbúnaði við framleiðendur, sem byggja á magnviðskiptum. Sérhönnuðu og þunglamalegu dagblaðakerfin vil ég losna við sem allra fyrst. Ég virði þau þó sem nauðsynlegan lið, eins konar gufuvélar, á TÚL VUMÖL//////////// 33

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.