Tölvumál - 01.06.1988, Page 34
þróunarbraut tölvunotkunar á dagblöðum.
Þessi kerfi hafa einkennt áratuginn, en eru nú
að hefja undanhald fyrir samtengdum borðtölv-
um, sem búa yfir fjölbreyttum hugbúnaði.
Gömlu kerfin eru frek á sérfræðikunnáttu í
umgengni við tölvur. Það virðast flest borð-
tölvukerfin því miðureinnig vera, sérstaklega ef
ætlast er til samhliða notkunar á fjölbreyttum
hugbúnaði. Starfsfólk, sem ráðið er til afreka á
öðrum sviðum en í samskiptum við tölvur, er
meira eða minna ósjálfsbjarga við aðra notkun
þeirra en hreina vélritun á texta og tölum.
Gufuvélarnar og hefðbundnu borðtölvurnar
eru enn nothæfar við færiböndin. Til að þjóna
undir skapandi störf þurfum við betri þræla. —
Ég hef séð nóg til að sannfærast um, að við
fáum þá fljótlega.
Smilllllllll/ TÖLVUMftL