Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 19
HÖNNUN: PRENTMET HF. Ef fyrlrtæki þitt nýtir sár SMT-tollafgreiðslu eykur það hagræði og sparnað. Gerð er sú krafa að allir sem nota SMT, (skjalasendingar milli tölva), við tollafgreiðslu, séu tengdir Tollalínunni. • Hún veitir aðgang að tollskýrslum og stöðu þeirra í Tollakerfinu ásamt upplýsingum um greiðslustöðu og öðru viðkomandi fyrirtækinu. Upplýsingar um tollskrártengd atriði svo sem gjöld o.fl. Að auki birtast í Tollalínunni nýjustu fréttir um tollamál. Hvaöer Reynsla þeirra sem hafa notað Tollalínuna og SMT er mjög góð . Algengt er að innflutningsfyrirtæki spari að minnsta kosti hálft dagsverk hvern virkan dag árið um kring. Hringið ogfáið nánari upplýsingar, hjá eftirtöldum aðilum: Ragnari Gunnari Þórhallssyni, Ríkistollstjóraembættinu, sími 600500, eða Sveinbirni Högnasyni hjá Skýrr, sími 695100. • Tollalínan er forsenda fyrir SMT, (skjalasendingar milli tölva), við tollafgreiðslu. Hagræðið af notkun Tollalínunnar er m.a. eftirfarandi: • Fletta má upp á stöðu tollskýrslna á hvaða tíma sólarhrings sem er. • Stöðvist tollskýrsla á ferli sínum má gera viðeigandi ráðstafanir. • Uppfletting á gildandi tolltöxtum, gjöldum og kvöðum. • Skoða má tollgengi á hverjum tíma. • Skoða má greiðslustöðu og aðrar upplýsingar er varða þitt fyrirtæki. • Lesa má nýjustu fréttir varðandi tollamál. • Tenging við Tollalínuna er möguleg hvar sem er á landinu. Ekki þarf lengur að fara með tollskýrslur til tollstjóra. Engin bið eftir afgreiðslu. Leit að bílastæði verður óþörf. Senda má tollskýrslur næstum því hvenær sem er sólarhringsins. Fyrirtækið þarf ekki að fá afhendingarheimild hjá tollstjóra. Hún er send með SMT til flestra farmflytjenda. Fyrirtækið fær skuldfærð öll aðflutningsgjöld vegna SMT- tollafgreiðslu. Það gerir upp á eins eða tveggja mánaða fresti, t. d. með gíróseðli sem sendur er til þeirra. RIKISTOLLSTJORAEMBÆTTIÐ TRVGGVAGÖTU 19 1 50 REYKJAVÍK SÍMI 91-600500 FAX 91-25826 HlMHHIiMJimHJl HÁALEITISBRAUT 9 1 08 REYKJAVÍK SÍMI 9 1-695 1 00

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.