Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 27

Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 27
Apríl 1995 Tölvusamskipti og útflutningur Eftir Sigurð Inga Margeirsson í þessari grein er ætlunin að lýsa tölvukerfi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH) í grófum dráttum en það hefúr tekið miklum breytingum á undanfömum tveim- ur árum. Þeim lesendum til fróð- leiks sem ekki þekkja til þessa fyrirtækis er SH stærsti útflytjandi frystra sjávarafurða hérlendis, 121.7 þúsund tonn á síðasta ári og með sölu upp á 28.4 milljarða cif. Fyrirtækið hefur verið í farar- broddi í sölu á frystum sjávara- furðum frá 1942 og rekur dóttur- fyrirtæki og söluskrifstofur erlendis auk fiskréttaverksmiðja í Bandaríkjunum og Bretlandi. Söluskrifstofur eru í Þýskalandi, Frakklandi og Japan. SH er með gæðakerfi fyrir þjónustu og vöru- þróun sem er vottað og er það sam- kvæmt ISO 9001 staðlinum en óháðir aðilar staðfesta að SH upp- fylli hann. SH sér um sölu á fryst- um og ferskum sjávaraíurðum fyrir tugi framleiðenda á Islandi auk þess að selja fýrir erlenda framleið- endur. Tölvukostur SH hefur breyst mjög á liðnum ámm frá gataspjaldi til biðlara/miðlara umhverfis eins og það er í dag. Tölvukostur SH í dag eru tvær IBM PC SERVER 500 tölvur sem eru netþjónar og lítil AS/400 tölva. Á nærnetinu em um 100 tælci, tölvur og jaðartæki. Nærnetið er Ethernet og kapal- kerfið er frá AT og T. Á netþjón- unum er stýrikerfið OS/2 og Lan Server. Það sem einkennir tölvu- umhverfíð hjá SH eru mikil sam- skipti við aðila innan- og utanlands og því em á netinu samskiptagáttir sem ýmist eru bein innhringisam- bönd eða fastar tengingar við gagnanetið. Ein er sú regla sem viðhöfð er í rekstri tölvukerfisins og hún er sú, að skrá upplýsingar á einum stað og nýta þær síðan til frekari úr- vinnslu á öðrum og eru þá upplýs- ingauppsprettumar ekki landfræði- lega bundnar í kerfinu heldur eru tölvusamskipti nýtt til að brúa og tengja saman fyrirtækið. Frum- skráningar eru mun færri innan fyrirtækisins nú, heldur eiga þær sér stað utan þess hérlendis sem erlendis. Þannig er pöntun skráð í Japan, talning í gám er skráð á í safirði og reikningur til viðskipta- vinar er gerður í Reykjavík sam- kvæmt skráningum sem berast til SOLUSKRIFSTOFUR FRYSTITOGARAR UTANAOKOMANDI TÖLVUPÓSTUR V SH FLUTNINGSFAR Tölvumál - 27

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.