Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 20
Apríl 1995 hvort sem er í strandflutningum eða millilandasiglingum og verði breyt- ingar eru þær sendar sjálfkrafa til viðkomandi skipafélags. Gámaskráning Kerfíð heldur utan um hleðslu á gámum, hverjir eiga að fá þá, hvaða sölustaðfestingar eiga við eða hvort viðkomandi vara fer í birgðir, ásamt uppskipunarhöfn og endastað. Jafnframt getur kerfið reiknað frakt á hvem gám. Lestun Fullhlaðna gáma er hægt að merkja sem lestaða og þar með er hægt að skoða hvað hefur verið lestað á hverjum tíma. Skjalagerð Við gerð skjala er hægt að kalla fram það sem búið er að lesta og gera síðan sjálfkrafa þau skjöl, sem merkt er að viðkomandi viðskipta- maður eigi að fá. Ef vill er hægt að velja um að senda þau vélrænt. Þetta kerfi kemur til með að ná yfir öll þau skjöl, sem gerð eru fyrir viðskiptamenn og opinbera aðila. Vottorð, sem staðfest eru af skoðunarstofu, staðfestast vélrænt, þannig að ekki þarf sérstakan stimpil. Tollskýrslur eru sendar vélrænt samkvæmt EDIFACT staðli. Þar með opnast möguleiki á því að innflytjendur í kaupland- inu losni við að gera tollskýrslur. Sýni eru meðhöndluð sér- staklega og verða skjöl vegna þeirra til sjálfkrafa á sama hátt og getið var hér að framan. Þessi þáttur tengist vöruþróunarkerfi. Reikningar eru sendir vélrænt beint til kaupanda samkvæmt EDIFACT staðli, ef þess er óskað. Upplýsingakerfi Inngangur Þessi kerfí hafa þann tilgang að veita á aðgengilegan hátt aðgang að upplýsingum á því formi, sem best hentar hverju sinni. Flest kerf- in í þessum hluta eru búin eigin- leikum hópvinnukerfa og innihalda verkflæði, þar sem það á við. Söluupplýsingar Ef sérstök sölukerfí eru á sölu- skrifstofum er beinn aðgangur að upplýsingum úr þeim, þannig að heildarmynd fæst af viðskiptum einstakra viðskiptamanna. í þessum kerfishluta er hægt að skoða söluupplýsingar myndrænt og í tölum (magn og upphæðir). Hægt er að skoða sölu eftir land- fræðilegri skiptingu með því að benda á landsvæði á landakorti á tölvuskjánum. Mögulegt er að skoða sölur eftir ýmsum samsettum forsendum eins og pakkningum, fisktegundum, vinnsluflokkum, viðskiptamönn- um, pakkningahópum og velja tímabil til skoðunar og saman- burðartímabil. Einnig er hægt að skoða verðþróun pakkninga eða pakkningahópa eftir sama vali. Viðskiptamannaupplýsingar Hér er hægt að nálgast upp- lýsingar um öll samskipti við við- skiptamanninn og viðskipti hans. Þar á meðal eru upplýsingar um gæðamál, heimsóknir, bréfaskriftir og vöruþróunarverkefni. Jafnframt er hægt að skrá fyrir- spumir og fýlgja þeim eftir með þessu kerfí. Þessar upplýsingar eru að hluta til sameiginlegar aðalskrifstofu og söluskrifstofum. Því er mögulegt að vinna sam- eiginlega að einstökum fyrirspum- um og verkefnum, sem tengjast viðskiptamönnum. Markaðsupplýsingar I þennan gagnagrunn er hægt að skrá fyrirspumir frá erlendum aðilum, samskipti við aðila vegna sölumála o. fl. sem tengist mark- aðsmálum. Hér er hægt að kalla fram upplýsingar á ýmsa vegu eftir pakkningum, fisktegundum eða á annan hátt. Þessi gagnagrunnur er tengdur ytri gagnagrunnum, sem uppfæra verðupplýsingar á erlend- um fiskmörkuðum og aðrar töl- fræðilegar upplýsingar, sem máli skipta. Framleiðendur geta tengst þess- um upplýsingabanka, með tak- mörkuðum hætti. Vöruþróunarupplýsingar Hér er hægt að skrá öll vöru- þróunarverkefni og fylgjast með þeim. Hægt er að skrá öll skjalaskipti um verkefnið og skjöl, sem gerð hafa verið viðkomandi verkefninu. Jafnframt er hægt að skrá kostnað við verkefnið. Söluskrifstofur geta skráð beiðnir og er þá vöruþróun látin vita sjálfkrafa um beiðnina. Þar er hægt að bæta inn upplýsingum og ákveða, hvort verkefni er sett af stað. Síðar er hægt að skoða upp- lýsingar um vöruþróunarverkefni eftir físktegundum, kaupendum, eðli vinnslu, niðurstöðu o.sv. frv. Þegar sýni eru send úr landi er hægt að senda upplýsingar inn í skjalgerð úr þessu kerfí. Gæðaupplýsingar Hér er hægt að skrá öll gæða- mál og getur skráning átt sér stað hvar sem er í sölunetinu. Kerfið sér um að fylgjast með gæðamálinu og láta vita, ef afgreiðsla þess dregst úr hömlu. Kerfið heldur utan um kaupanda, kostnað, gallategund, afgreiðslu, framleiðanda o.fl. Hægt er að nálgast upplýsingar eftir öllum skráðum þáttum. Frá þessu kerfi er hægt að nálg- ast upplýsingar úr gæðakerfi fram- leiðandandans um viðkomandi vöru og nota þær til úrvinnslu á gæðamálinu. Skoðunarstofa Þetta kerfi heldur utan um allar þær upplýsingar, sem nauðsyn- legar eru vegna framleiðandans, allar heimsóknir og niðurstöðu þeirra, gátlista og niðurstöðu þeirra og sýnatöku og afgreiðslu á Frh.á næstu síðu. 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.