Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 42

Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 42
Apríl 1995 Tölvukerfi Haraldar Böðvarssonar hf., Akranesi Eftir Sturlaug Sturlaugsson og Óskar Einarsson Inngangur Haraldur Böðvarsson hf. hefur mörg undanfarin ár verið að þróa, fyrst með RT-Tölvutækni og nú Kerfí hf., heildarhugbúnaðarlausn fyrir alla starfsemi fyrirtækisins. Meginmarkmiðið hefur verið að treysta ákvarðanatöku stjórnenda HB með því að hanna hugbúnað sem auðveldar upplýsingaöflun og meðhöndlun gagna, stytta úr- vinnslutíma og treysta áreiðanleika þeirra. I raun er svona verkefni aldrei lokið þar sem tímarnir breytast, kröfurnar verða meiri og möguleikar á lausnum eru sífellt fleiri og í stöðugri þróun. Reynsla okkar af þessari vinnu er sú að vinnubrögð almennt innan fyrirtækisins hafa orðið agaðri og nákvæmari. Við treystum betur þeim gögnum sem við vinnum með og stjómendur og starfsmenn al- mennt hafa betri tilfinningu fyrir rekstri fyrirtækisins. Haraldur Böðvarsson hf. hefur sinnt mjög kröfuhörðum mörkuðum sem að vissu leyti hefur flýtt þeirri hugbúnaðarvinnu sem átt hefur sér stað og þá sérstaklega er varðar gæða- og framleiðsluskráningu. Hér á eftir er stutt lýsing á tölvu- og hugbúnaðarheimi Har- aldar Böðvarssonar hf. Óskar Einarsson verkfræðingur hjá Keríi hf. aðstoðaði við framsetningu greinarinnar. Tölvubúnaður I tölvukerfí Haraldar Böðvars- sonar hf. er megintölva IBM AS/ 400. Til viðbótar er HP9000 tölva sem er sérstök stýritölva fyrir Marel vinnslulínu. Þessar tölvur eru tengdar saman á tókaneti og þar til viðbótar eru PC tölvur, sem notaðar eru sem útstöðvar á báðar vélar, með Rúmbu skjáhermi, ásamt því að þær eru notaðar fyrir ritvinnslu, töflureikni og fleiri not- endaforrit. Einnig hefur AS tölvan beintengda skjái og prentara. Starfsemi fyrirtækisins er nokk- uð dreifð og því þarf að fara á milli húsa með tengingu á tölvum. T.d. er skrifstofa fiskmjölsverksmiðj- unnar tengd við aðalskrifstofu með símalínu við AS/400 tölvuna. Hins vegar eru “serial” línur á milli fisk- mjölsverksmiðjunnar sjálfrar og skrifstofu hennar, en þær tengja saman annars vegar Intermec skráningarstöð íyrir framleiðslu og hins vegar Póls tímaskráningar- klukku við tölvur á skrifstofunni. Einnig eru notaðar lausar hand- tölvur frá Intermec til skráningar á afurðum frá frystitogurum en um leið eru einnig búnir til strikamiðar til merkingar á brettum. Sama tölva er einnig notuð þegar til út- skipunar á frystum afurðum kemur. Samræmt heildarkerfi Viðskiptahugbúnaður er ALVÍS frá Kerfi hf. og er það heildarlausn sem tekur til allra þátta í rekstri Haraldar Böðvars- sonar, frá bókhaldi og tengdum Ijárhagskerfum, launum, birgða- Bankalína Mynd 1 42 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.