Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Qupperneq 33

Tölvumál - 01.04.1995, Qupperneq 33
SVEIGJANLEIKIER FORSENDA ÁRANGDRS Forsenda þess að bygging fái staðist tímans tönn er ekki einungis traust undirstaða því sveigjanleikinn ræður jafn miklu um styrk mannvirkja. Hugbúnaður hefur nákvæmlega sama eðli. Viðskiptahugbúnaðurinn FJÖLNIR hefur hlotið fádæma viðtökur hér á landi sökum óbilandi rekstraröryggis og mikils sveigjanleika. FJÖLNI má sníða að ótrúlegustu kröfum enda gerir sveigjan- leikinn kerfinu kleift að yfirstíga allar hugsanlegar hindranir. FJÖLNIR er því aldrei í endanlegu formi þar sem sífellt má laga hann eftir því sem ytri forsendur breytast. Þessar breytingar á tölvukerfinu eru gerðar með lágmarks aðlögunarvinnu og litlum tilkostnaði. Viðskiptahugbúnaðurinn FJÖLNIR er alhliða stjórntæki í rekstri fyrirtækja og gengur á öllum útbreiddustu stýrikerfum heims. Nethugbúnaður er innbyggður í FJÖLNI en einnig er hægt að nota önnur netkerfi samhliða. FJÖLNI eru þannig engin takmörk sett. Hann má keyra jafnt á einmenningsvélum í litlum rekstrar- einingum sem á netum stórfyrirtækja með hundruð notenda. FJOLNIR VIÐSKIPTAHUGBUNAÐUR 'FJÖLNIR er gott kerfi en aðal kostur hans er mikill sveigjanleiki.Það má endalaust prjóna við kerfið án þess að leggja út í kostnaðarsama forritunarvinnu. FJÖLNIR hefur skilað ágætum árangri í rekstri Bónus og hann á drjúgan þátt í lágu vöruverði hjá okkur/ Jón Asgeir Jóhannesson, Bónus. 'Við hjá Hans Petersen hf. gerum miklar kröfur til upplýsingakerfis og viljum að það skili mjög við tækum upplýsingum, bæði skjótt og örugglega. FJÖLNIR hefur gert þetta og að auki fallið mjög vel að starfsemi okkar. Sveigjanleiki hans er svo víðtækur að nánast allt virðist mögulegt. Kerfishönnuðir Strengs hafa enda lagt sig fram við að verða við óskum okkar um breytingar og aðlaganir á FJÖLNI.' Karl Þór Sigurðsson, fjármálastjóri Hans Petersen Itf. 'FJÖLNIR býr yfir margvíslegum kostum sem nýtast fyrirtækjum við varðveislu og miðlun upplýsinga. Skráning og önnur vinnsla í kerfinu er þægileg. Auk þess er skýrslugjafinn í FJÖLNI sveigjanlegur og nýtist hann vel við afstemmingar og aðra úrvinnslu gagna úr kerfinu.' Aðalsteinn Garðarsson, Endurskoðun hf. 'Þegar við hjá Ríkiskaupum skiptum yfir í FJÖLNI fannst mér eins og ég væri nánast kominn í aðra veröld. Það er virkilega einfalt að nálgast allar upplýsingar í FJÖLNI og sveigjanleikinn í kerfinu er einstakur. FJÖLNIR er auk þess mjög þægilegur í allri notkun þar sem hann hefur alls staðar sama viðmót gagnvart notanda. FJÖLNIR er kerfi sem hefur reynst okkur mjög vel.' Tryggvi Hafstein, Ríkiskaupum. 'FJÖLNIR hefur hentað okkur frábærlega sem alhliða upplýsinga- og sölukerfi. Helstu kostir FJÖLNIS eru einfaldleiki og hversu auðvelt er að nálgast mikilvægar upplýsingar í kerfinu. Það er mín skoðun að það finnist ekki hentugra kerfi fyrir aðila x innflutningi og dreifingu.' Halldór Kvaran, sölu- og markaðsstjóri hjá Gunnari Kvaran hf. 'FJÖLNIR er mjög sveigjanlegur hugbúnaður sem alltaf má laga að breyttum forsendum. Þessi sveigjanleiki er stærsti kostur FJÖLNIS en það skiptir sköpum í dag að ráða yfir kerfi sem býður upp á mikinn sveigjanleika.' Vilhjálmur Örn Sigurhjartarson, aðalbókari hjá Pósti ogsíma STRENGUR HF STÓRHÖFÐA 15, 112 REYK.JAVÍK SÍMI 587 5000, FAX 587 0028

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.