Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 24
Apríl 1995
Macsea skipstjórnarbúnaðurinn
Eftir Kristján Gíslason
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir þeim þáttaskilum sem átt hafa
sér stað í þróun siglinga- og fiski-
leitartækja með tilkomu Macsea
skipstjómarbúnaðarins.
Franska fyrirtækið Informati-
que et Mer, sem framleiðir Macsea
hugbúnaðinn, hefur þróað búnað-
inn að miklu leyti í samstarfi við
íslenska skipstjómarmenn. Radio-
miðun hf. er hluthafi í þessu fyrir-
tæki og segir það eflaust meira en
mörg orð um tiltrú okkar á Macsea
hugbúnaðinum. Informatique et
Mer hefur nú verið valið í hóp
framsæknustu tæknifyrirtækja í
Frakklandi fyrir vinnu sína að hlut-
bundinni forritun fyrir grafíska
gagnagrunna. Fyrirtækið, sem var
stofnað 1985, sérhæfði sig í gerð
siglingaforrita fyrir seglskútur sem
taka þátt í siglingakeppnum, en
það er grunnurinn að Macsea skip-
stjórnarbúnaðinum. Þess má til
gamans geta að allir sigurvegarar
í alþjóðlegum siglingakeppnum
(t.d. BOC og Withbred) s.l. 7 ár
hafa haft Macsea skipstjórnar-
búnaðinn innanborðs. Macsea
skipstjórnarbúnað má m.a. finna
um borð í herskipum o.þ.m.t.
einum kjamorkukafbáti.
Þróun siglinga- og fiskileitar-
tækja hefur verið með sama hætti
og hjá hefðbundnum rafeinda-
tækjum sbr. sjónvarp og útvarp.
Öll þessi tæki hafa byggst á tækni
síns tíma. Lampatækninni var rutt
úr vegi af smáratækninni (transist-
orar) og síðan tók rafeindarása-
tæknin (tölvurásir) við, sem er
tækniundur líðandi stundar. Erfítt
er að ímynda sér að til verði í
nánustu framtíð slík tæknibylting
sem rafeindarásatæknin hafði í för
með sér. Þó tel ég að við stöndum
á þröskuldi nýrra tírna, sem telja
má upphaf tæknibyltingar í sigl-
inga- og fiskileitartækni.
Á tímum lampatækjanna var
um fá og mjög ófullkomin tæki að
ræða. Tækin vom dýr svo og rekst-
ur þeirra. Eftir að transistortækin
fóru að ryðja sér til rúms jókst
rekstraröryggið og nýir möguleikar
opnuðust. Með tilkomu tölvurása-
tækjanna (sbr. lóransins) virtist
sem allar gáttir opnuðust og nær
óteljandi möguleikar voru inn-
byggðir í hverjutæki. Ekkiþykir
lengur tiltökumál að hafa annað
tæki til öryggis, því kostnaðurinn
og viðhald tækjanna er aðeins brot
r » Skrá Ritfærsla Ualkostir Gluggar Útlit Uerk Ueiðidagbók Fös 9 52 (?) 35 A ^
24 - Tölvumál