Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 30
Apríl 1995
Vógimar skrá vigt og aðrar upplýs-
ingar og senda til tölvunnar. Á
grundvelli þessara upplýsinga
tekur tölvan ákvarðanir um ýmsar
stýriaðgerðir, sem vogirnar síðan
framkvæma á línunni.
Fullkomin Marel flæðivog stýr-
ir losun á afurðahólfum sem eru
við hvert snyrtistæði. Vogin losar
skammta úr hverju afurðahólfi í
ákveðinni röð, vigtar þá, skráir og
stýrir þeim síðan á rétta
braut, þ.e. til frekari
vinnslu, í pökkun eða á
lausfrysti, allt eftir eðli
framleiðslunnar. Vogin
stýrir einnig sjálfvirku
úrtaki fyrir gæðaeftirlit.
Með þessu móti er hægt
að hafa mjög ijölbreytta
vinnslusamsetningu á
einni flæðilínu, svo og á
hverju snyrtistæði, sem
getur m.a. stjórnast af:
ástandi hráefnis, pakkn-
ingavali og hæfileikum
einstakra starfsmanna.
Það má jafnvel vinna
nokkrar fisktegundir sam-
tímis á einni línu. Flæði-
vogin þekkir þá vinnslu-
samsetningu sem er á
hverju snyrtistæði og
heldur afurðum aðgreind-
um í vinnsluferlinu.
Marel flæðivogin og tölvu-
kerfið gera fleira en að stýra fram-
leiðslunni á flæðilínunni. Hver
skammtur sem yfir vogina fer er
vigtaður. Vogin veit frá hvaða
snyrtistæði viðkomandi skammtur
er kominn, hvaða afurð er um að
ræða og hvaða starfsmaður er á
viðkomandi snyrtistæði. Með
þessari skráningu fást, á sjálf-
virkan hátt, mjög ítarlegar og
mikilvægar upplýsingar um það
magn sem unnið er á hverju snyrti-
stæði, hver afköstin eru, nýting og
afurðaskipting. Þessar upplýsingar
geta stjómendur sótt hvenær sem
er og hafa þeir því mjög gott yfirlit
yfir gang vinnslunnar og árangur
einstakra starfsmanna. Er því
auðvelt að grípa inn í ef vinnslan
er ekki á þeirri braut sem gert var
ráð fyrir og ástand hráefnis sagði
til um.
Einn eiginleiki þessa kerfis er
óháð gæðaeftirlit, þ.e. flæðivogin
velur úrtak til gæðaskoðunar.
Starfsmaður í gæðaskoðun yfírfer
þessa skammta og slær niður-
stöðurnar beint inn í sérstaka
gæðaskráningarstöð. Niðurstöður
úr gæðaskoðun eru síðan notaðar
til að meta árangur starfsmanna og
hvort þörf er á að fylgjast betur
með gæðamálum viðkomandi
aðila. Komi fyrir að hjá einhverjum
starfmanni verði vart meiri galla-
tíðni en viðmiðunarmörk gera ráð
fyrir eykur afurðavogin tíðni úr-
taks í gæðaskoðun hjá viðkomandi,
þar til hann hefur bætt árangur
sinn. Virk gæðastjórnun í dag
byggist á því að gallar eða gæða-
slys séu auðrekjanleg og er gæða-
skoðun sem unnin er á þennan hátt
því forsenda þess að fyrirtæki í
sjávarútvegi geti sóst eftir gæða-
vottun á starfsemi sinni.
Við hönnun línunnar var nauð-
synlegt að gera ráð fyrir miklum
sveigjanleika í stjórnun hennar,
bæði hvað varðar hráefnisflæði og
sýnatöku í gæðaeftirlit. Það lá því
beint við að tölvustýra línunni en
það kallaði á nýjar aðferðir og ljóst
var að eldri Marel kerfi, sem
keyrðu undir MS-DOS, hentuðu
ekki. Því var ráðist í að skrifa nýtt
kerfi sem skyldi keyra í fjölnot-
endaumhverfi. Þó svo að hin nýja
flæðilína hafi verið miðpunktur
nýja kerfisins, sem fékk nafnið
MP/3, var það að sjálfsögðu
hannað með allt fískvinnsluferlið í
huga. MP/3, sem keyrir undir Unix
stýrikerfi, býður upp á eftirlit með
fiskvinnslu frá móttöku til
frystingar.
Helstu atriði sem lögð eru til
grundvallar hönnunar MP/3:
- Kerfíð mælir magn, afköst, nýt-
ingu og gæði á öllum stigum
framleiðslunnar.
- Tímaskráning er samhæfð
vinnsluskráningu þannig að
hægt er að fylgjast með þeim
tíma sem fer í hvern verkþátt
og þeim heildartíma sem fer í
hverjavinnslulotu.
- Kerfíð er rauntímakerfí, bæði
hvað varðar stýringu fram-
leiðslunnar og úrvinnslu upp-
lýsinga.
Mynd 1.
Ur fiskvinnslusal með flœðilínum, sem stýrt er af MP/3 kerflnu.
30 - Tölvumál