Tölvumál - 01.05.2000, Síða 3
Tímarit Skýrslutæknifélags íslands
• E • F • N • 1 •
Uppgjör 2000 vandans FIaukur Ingibergsson
Um þriðju kynslóð persónubundinna þráðlausra fjarskipta Sigfús Björnsson 10
GPRS og upplýsingabyltingin JÓAKIM REYNISSON 24
Að brúa þráðlausa bilið FIrafnkell V. GIslason 29
Upplýsingasamfélagið á Bifröst Runólfur Ágústsson, Ninir Elmo 31
Nethnöttur Tæknivals: upplýsingabyltingin til sjófarenda Bergsteinn FIjörleifsson 33
Þróun fjarskiptatækni og fjarskipta- þjónustu ÖRN ORRASON 35
Af CeBIT 2000 Einar Fl. Reynis 38
.EU - Nýtt svæði fyrir EES á Internetinu Þorgeir Sigurðsson 43
Ráðstefnur og sýningar 44
ISSN-NÚMER:
1021-724X
Fimmtudagurinn 4. maí var í upphafi hverjum öðrum líkur. Þegar
kíkt var í pósthólfið blöstu við nokkur ólesin skeyti sem öll voru með
sama heiti. „Enn eift keðjubréfið" var það sem fór um hugann þegar
smellt var ó Deletehnappinn. En þetta var ekki svo saklaust því stuttu
síðar kom í Ijós aö sendingin var alvarlegri en svo. Þetta voru fyrstu
kynni af sendingu sem skók tölvuheiminn og viðbúið er að eftir-
skjólftar munu fylgja.
Heimurinn varð þennan dag vitni að þeim einstaka atburði að
einn maður gat slegið í rot, ef svo mó að orði komast, nánast alla
heimsbyggðina með því að senda af stað hinn alræmda Astarorm.
Atburðarásin var ótrúleg, eins og úr vísindaskáldsögu og óvætturinn
lék sér að því að sniðganga allar veiruvarnir. Frá Asíu fór sendingin
um hnöttinn með hraða sólarupprásarinnar en slíkur útbreiðsluhraði
á tölvuóvætti hafði aldrei sést fyrr. Það þarf ekki að tíunda hér
hvaða tjón hlaust af þessu athæfi en upphæðirnar eru gífurlegar og
ómæld vinna síðan farið i að bæta skaðann.
Það sem blasir við er að netvæðing heimsins er orðin þannig
að þetta var mögulegt, tölvubúnaður einsleitur og allar aðstæður
fyrir hendi en samt enginn viðbúinn enda kannski ekki fyrir nokkurn
mann að spá fyrir öðru eins. Þetta vissi höfundur Astarormsins.
Oheiðarleiki á sér ekki takmörk og skotspónninn sá sem er auð-
veldasta bráðin.
Hvað mun gerast í framhaldi? Er hægt að brynja sig fyrir öðru
áhlaupi? Ljóst er að taka þarf póstkerfi og umgengni við viðhengi
sem fylgja sendingum til algjörrar uppstokkunnar. Ástarormurinn not-
færði sér eiginleika í stýrikerfum eða kannski galla sem var, og er,
til staðar sem gerði það að verkum að hann gat spilað á póst-
forritin. Það verkefni liggur fyrir að koma í veg fyrir endurtekningu.
Fyrr á árinu var einnig í fréttum það sem kallaðar voru DOS-
árásir á nokkur þekkt vefsetur en þær fólust I því að vefsetrin voru
keyrð í kaf með mikilli gervi-umferð og öll venjuleg umferð þannig
stöðvuð. Þær árásir virtust þrautskipulagðar og ekki annað vitað en
að sá, eða þeir, sem stóðu þar að baki hafi komist undan réttvís-
inni.
Þessi tvö dæmi, eins ólík og þau eru, sýna að sem fyrr eru
öryggismál aldrei tekin of alvarlega. Almenningur mun senn gleyma
Ástarorminum en öðru máli gegnir um fagfólk í upplýsingatækninni.
Innan þess hóps verður 4. maí lengi í minnum hafður.
Einar H. Reynis
Tolvumál
3